Handbolti

Afturelding á toppinn á ný

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Elvar Ásgeirsson fór mikinn áður en hann sá rautt
Elvar Ásgeirsson fór mikinn áður en hann sá rautt vísir
Afturelding tyllti sér á topp Olís-deildar karla í handbolta í dag á nýjan leik með 27-22 sigri á Stjörnunni á útivelli í hörkuleik.

Upplýsingar af gangi leiksins voru fengnar af mbl.is

Staðan var jöfn í hálfleik 13-13 en Afturelding reyndist sterkari aðilinn á lokasprettinum eftir jafnan leik framan af seinni hálfleik.

Birkir Benediktsson var markahæstur í liði Aftureldingar með 7 mörk. Elvar Ásgeirsson sem fékk að líta rauða spjaldið snemma í seinni hálfleik skoraði 4 mörk líkt og Kristinn Hrannar Elísberg Bjarkason.

Ari Magnús Þorgeirsson skoraði mest fyrir Stjörnuna, 7 mörk. Garðar Benedikt Sigurjónsson skoraði 5. Stjarnan er í fimmta sæti deildarinnar, fjórum stigum frá toppliði Aftureldingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×