Sport

Afturelding 2-1 yfir í úrslitum eftir heimasigur

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Afturelding vann Þrótt í kvöld á heimavelli í Mosfellsbænum.
Afturelding vann Þrótt í kvöld á heimavelli í Mosfellsbænum. MYND/ILIYAN DUKOV
Deildarmeistarar Aftureldingar og Þróttur Neskaupsstað mættust þriðja sinni í kvöld í lokaúrslitum Íslandsmóts kvenna í blaki en heimakonur höfðu betur að Varmá í kvöld, 3-0.

Fyrstu tveir leikirnir unnust á útivelli og jafnt í einvíginu, 1-1, fyrir leikinn í kvöld en nú þurfa deildarmeistararnir aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér Íslandmeistaratitilinn.

Aftureldingarkonur mættu gífurlega öfluga rtil leiks í kvöld og ljóst var að þær ætluðu að pressa vel á gestina. Sterkar uppgjafir hjá Aftureldingu sköpuðu töluverð vandræði fyrir Þrótt og fór svo að Afturelding vann fyrstu hrinuna, 25-11.

Afturelding hélt áfram í annari hrinu og gaf Þrótturum aldrei tækifæri að koma sér inn í leikinn og vann aðra hrinuna 25-13. Í þriðju hrinu byrjaði Afturelding betur en Þróttarkonur komu sterkar til baka og jafnræði var með liðunum en í stöðunni 19-18 tók Afturelding völdin á vellinum og vann hrinuna 25-21.

Afturelding vann leikinn því 3-0 og var það sterk liðsheild sem skóp þennan sigur.

Stigahæstar í liði Aftureldingar voru Thelma Dögg Grétarsdóttir með 13 stig og ZaharinaFilipova með 11 stig. Í liði Þróttar var JónaVigfúsdóttir með 17 stig og Erla Rán Eiríksdóttir með 6 stig.

Næsti leikur liðanna fer fram í Neskaupsstað þriðjudaginn 22. apríl og hefst hann kl. 19:30. Þar getur Afturelding tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.

 

Annað kvöld eigast síðan við HK og Stjarnan í úrslitum karla og verður leikið í Fagralundi kl. 19:30. HK er 2-0 yfir í einvíginu getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×