Innlent

Aftansöngur í Grafarvogskirkju í beinni á Stöð 2 og Vísi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Messan hefst í Grafarvogskirkju klukkan 18.
Messan hefst í Grafarvogskirkju klukkan 18. Vísir/Pjetur
Áttunda árið í röð mun bein útsending frá Aftansöng í Grafarvogskirkju vera bæði á Stöð 2 og Vísi. Landsmenn hafa tekið þessari útsendingu fagnandi undanfarin ár enda alltaf jafn hátíðleg.

Útsendingin hefst stundvíslega klukkan 18:00 aðfangadagskvöld. Prestur verður séra Vigfús Þór Árnason, kór Grafarvogskirkju syngur og Margrét Pálmdóttir stjórnar stúlknakór.

Einsöngvari verður Egill Ólafsson og tónlistarmenn með honum verða Matthías Stefánsson á fiðlu og Hákon Leifsson spilar á orgel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×