Innlent

Áfram í farbanni: Segir dóttur sína hafa átt tölvu er innihélt barnaklám

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
36 þúsund ljómsyndir sem sýna unga drengi ýmist nakta eða á annan kynferðislegan hátt fundust á tölvu mannsins.
36 þúsund ljómsyndir sem sýna unga drengi ýmist nakta eða á annan kynferðislegan hátt fundust á tölvu mannsins.
Hæstiréttur hefur staðfest áframhaldandi farbann yfir 59 ára gömlum dæmdum kynferðisbrotamanni, Jóni Sverri Bragasyni, til 14. október sem gripinn var í Leifsstöð þann 1. ágúst grunaður um vörslu barnakláms.

Við leit í farangri fundust vísbendingar um barnaklám og lögregla hald á tvær Samsung-tölvur og sex minnislykla. gæsluvarðhaldsbeiðni lögreglu kemur fram að við skoðun á annarri tölvunni hafi fundist um 36 þúsund ljómsyndir sem sýni unga drengi ýmist nakta eða á annan kynferðislegan hátt.

Horft var á hreyfimyndir í tölvunni

Einnig leiddi rannsókn lögreglu í ljós að kærði vistaði á tölvum sínum og minnikubbum kvikmyndaskrár sem  var eytt af tölvunum. Telur lögregla að kvikmyndaskrárnar hafi innihaldið kynferðisbrot gegn börnum. Lögregla vinnur að því að endurheimta skrárnar.

Var Jón Sverrir úrskurðaður í farbann til 16. september þar sem talið var að „ætla megi að hann muni reyna að komast úr landi eða leynast ellegar koma sér með öðrum hætti undan málsókn eða fullnustu refsingar“ eins og sagði í farbannsbeiðninni. Undir þau sjónarmið tók Héraðsdómur Reykjaness og síðar Hæstiréttur eins og Vísir greindi frá.

Í farbannsbeiðni lögreglu, sem lögð var fram þann 16. september eða daginn sem Jón Sverrir átti að losna úr farbanni, kemur fram að lögregla hafi við húsleit einnig lagt hald á fartölvu á dvalarstað Jóns Sverris hér á landi. Rannsókn á tölvunni hafi leitt það í ljós að horft hafi verið á hreyfimyndir í tölvunni sem lögregla telur innihalds kynferðisbrot gegn börnum. Skráin hafi verið opnuð þann 12. ágúst eða á þeim tíma er Jón Sverrir sætti farbanni.

Telja skýringar Jóns Sverris ótrúverðugar

Jón Sverrir sagði við yfirheyrslu að tölvan hafi verið í eigu dóttur hans og neitar hann að hafa sjálfur horft á umrædda hreyfimynd í tölvunni. Þá segist hann hafa keypt minniskubbana á útimarkaði. Sömuleiðis hafi hann ekki einn haft aðgang að umræddum Samsung-fartölvum og minniskubbum. Samstarfsmenn hans hafi haft aðgang að þeim og telur kærði að þeir gætu hafa komið efninu fyrir á tölvunum og kubbunum.

Lögregla telur að miðað við þau rannsóknargögn sem liggi fyrir í málinu að skýringar Jóns Sverris séu afar ótrúverðugar. Rannsókn sé í fullum gangi og yfirheyra þurfi kærða þriðja sinni þegar rannsókn á tölvugögnum verði lokið.

Lögregla telur hættu á að kærði muni reyna að komast úr landi verði honum ekki gert að sæta farbanni. Héraðsdómur Reykjaness féllst á þau rök á þriðjudag og Hæstiréttur staðfesti dóminn í dag.

Dóm Hæstaréttar má sjá hér.

Misnotaði þroskaheftan dreng

Jón Sverrir var þann 20. maí árið 2010 dæmdur í þriggja ára og sex mánaða fangelsi. Um var að ræða kynferðisbrot gegn þroskaheftum dreng sem var á aldrinum þrettán til fimmtán ára þegar brotin voru framin.

„Jón Sverrir tældi piltinn til kynmaka með því að notfæra sér þroskaskerðingu hans, reynsluleysi hans af kynlífi og tölvufíkn, en Jón greiddi drengnum fyrir kynmökin með tölvuleikjum eða peningum,“ segir í dómi Hæstaréttar frá 2010. Var Jóni Sverri veitt reynslulausn í desember 2012 eða þegar hann hafði setið inni í tvö og hálft ár.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×