Skoðun

Áfram á sömu braut

Jón Atli Benediktsson skrifar
Þekking er gjaldmiðill framtíðarinnar. Rannsókna- og nýsköpunarstarf hefur fært okkur Íslendingum meiri hagsæld en nokkurn gat grunað. Lífskjör almennings hafa stórbatnað og tækifæri til menntunar margfaldast. Við Íslendingar höfum ekki náð þessum árangri á einni nóttu. Hann helgast af einbeittum vilja þjóðarinnar til að sækja fram, vinnandi höndum, hugviti, menntun, metnaðarfullu háskólastarfi, rannsóknum og nýsköpun.

Á þessu ári fögnum við hundrað ára afmæli fullveldis Íslands, en fyrsta desember 1918 varð Ísland fullvalda þjóð. Fullveldisdagurinn hefur ætíð skipað stóran sess hjá Háskóla Íslands. Það er engin tilviljun því stofnun skólans var samofin sjálfstæðisbaráttunni. Það er heldur engin tilviljun að Háskólinn var stofnaður örfáum árum áður en fullveldi fékkst úr hendi Dana. Framsýnir Íslendingar skynjuðu þá og áður að háskóli hér væri forsenda þess að þjóðin yrði stjórnmálalega, efnahagslega og menningarlega sjálfstæð.

Björn M. Olsen, fyrsti rektor Háskóla Íslands, lét sig mjög sjálfstæði Íslands varða. Í ræðu sem hann flutti við stofnun skólans 17. júní 1911 fjallar hann um fjórar hugsjónir háskóla sem jafnframt liggja sjálfstæði til grundvallar. Í fyrsta lagi lýsir hann leitinni að sannleikanum sem höfuðmarkmiði háskólastarfs. Í öðru lagi undirstrikar hann frelsishugsjónina. Frjáls rannsókn og kennsla, segir Björn, er eins nauðsynleg háskóla og andardrátturinn er manninum. Í þriðja lagi fjallar Björn um uppeldi og mikilvægi þess að háskólar séu í lifandi tengslum við eigið samfélag. Í fjórða lagi leggur hann áherslu á alþjóðlegt eðli háskóla.

Það er merkilegt hvernig frumherjarnir sáu í þeim örsmáa skóla sem stofnaður var árið 1911 útlínur þess þróttmikla Háskóla Íslands sem við þekkjum í dag: Háskóla sem eykur lífsgæði, háskóla sem skapar nýja þekkingu og veitir prófgráður sem eru gjaldgengar um víða veröld, háskóla sem er eftirsóttur í samstarfsneti bestu háskóla heims, háskóla sem dregur að sér fjölda nemenda eins og nýjar umsóknartölur sýna, háskóla sem er mikilvæg undirstaða atvinnulífs og framfara og lifandi menningar.

Höfundur er rektor Háskóla Íslands




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×