Körfubolti

Afmælisbarnið Sigrún: Erum með marga flotta karaktera í liðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hún á afmæli í dag. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir.
Hún á afmæli í dag. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir. Mynd/S2/Böddi
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir verður í stóru hlutverki hjá íslenska kvennalandsliðinu í körfubolta á afmælisdaginn sinn.

Íslensku stelpurnar mæta Portúgal í Laugardalshöllinni klukkan 19.30 í kvöld en þetta er sjötti og síðasti leikur íslenska liðsins í undankeppni EM 2017.

Sigrún Sjöfn heldur upp á 28 ára afmælið sitt í dag en hún er fædd 23. nóvember 1988.

Íslenska liðið þarf að rífa sig upp eftir 46 stiga tap út í Slóvakíu á laugardaginn.

„Þetta var erfitt. Leikurinn var bara erfiður í alla staði og ég held að ég hafi aldrei spilað leik þar sem ég hef lent jafnoft á vegg. Við reyndum og reyndum en það gekk ekki. Þær voru stórar, sterkar og hraðar og það gekk ekkert upp hjá okkur,“ sagði Sigrún Sjöfn Ámundadóttir eftir æfingu liðsins í gær.

Hvernig ætla stelpurnar að rífa sig upp eftir skellinn úti í Slóvakíu?

„Við erum með marga flotta karaktera í liðinu. Við ætlum að gera betur og við munum gera betur. Þetta var erfitt en þetta er búið að það er ekkert sem við getum gert núna til þess að breyta því. Við ætlum að standa okkur í næsta leik og gera ennþá betur,“ sagði Sigrún.

„Þetta er ný hópur sem er að koma saman. Það er því erfitt að byggja ofan á það sem við gerðum á síðasta vetri. Það er margt sem þarf að laga og þá sérstaklega í sóknarleiknum. Við þurfum að finna lausnir,“ sagði Sigrún.

Sigrún var bæði stighæst og með flestar stoðsendingar hjá liðinu í leiknum á móti Slóvakíu.

„Ég þarf að taka mig til og gera betur eins og allir aðrir í liðinu, bæði í sókn og vörn. Þetta er erfitt af því að þær eru stórar og sterkar en við eigum meiri möguleika á móti Portúgölunum,“ sagði Sigrún.

Íslenska liðið vann frábæran sigur á Ungverjalandi í febrúar.

„Við vorum hérna heima og fengum frábæran stuðning frá áhorfendum sem gaf okkur ennþá meiri kraft inn á völlinn. Ef við fáum góðan stuðning og tökum okkur allar saman og berjumst sem einn maður þá eigum við góða möguleika,“ sagði Sigrún.

Fyrri leikurinn tapaðist út í Portúgal en það er eini sigur portúgalska liðsins í keppninni. Sigur tryggir íslenska liðinu þriðja sæti riðilsins.

„Við höfum talað um það eftir síðasta leikinn á móti Portúgal að við ætlum að vinna þær hérna heima. Það er stefnan að vinna þær og taka þriðja sætið,“ sagði Sigrún að lokum.


Tengdar fréttir

Pálína ekki með gegn Portúgal

Pálína Gunnlaugsdóttir verður ekki með íslenska landsliðinu þegar það mætir því portúgalska í undankeppni EM í körfubolta í Laugardalshöllinni á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×