Lífið

Afmælisbarnið Fjölnir Þorgeirsson sá úrslitin fyrir

Bjarki Ármannsson skrifar
Geri aðrir betur.
Geri aðrir betur. Vísir
„Hvað sagði ég? Takk strákar, fyrir bestu afmælisgjöf í heimi.“ Þetta skrifar afmælisbarn dagsins, hestamaðurinn Fjölnir Þorgeirsson, á Facebook-síðu svona og setur um leið inn hlekk á viðtal við sig sem birtist á Vísi fyrr í dag.

Tilefnið er að sjálfsögðu frækinn sigur Íslands á Englandi á Evrópumeistaramóti karla í knattspyrnu fyrr í kvöld. Lokatölur voru 2-1 fyrir Ísland en merkilegt nokk spáði Fjölnir nákvæmlega þeim úrslitum í viðtalinu og var því slegið upp í fyrirsögn.

Fjölni skeikaði reyndar nokkuð þegar litið er til smáatriða.

„Við munum ná 2-0 svo munu þeir fækka um einn,” sagði Fjölnir. „Eiður Smári mun setja eitt mark.“

Raunin varð sú að Englendingar komust yfir mjög snemma leiks en Íslendingar jöfnuðu nánast um leið og skoruðu svo það sem reyndist sigurmarkið um miðbik fyrri hálfleiks. Eiður Smári Guðjónsen kom ekki inn á að þessu sinni.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×