Lífið

Aflitaði á sér hárið eftir áskoranir á Snapchat

Strákarnir í ferðaþættinum Illa farnir, Davíð, Brynjólfur og Arnar, eru byrjaðir að ferðast um Austurland.

Fyrsti þátturinn úr fjórðungnum fór í loftið hér á Vísi um helgina og var hann stútfullur af fjöri eins og alltaf.

Meðal þess sem strákarnir tóku upp á var að vera í sambandi við þá sem fylgja þeim á Snapchat og leyfa fólki að kjósa um hvort Davíð eða Binni þyrftu að aflita sig. Strákarnir eru mjög duglegir á snappinu undir nöfnunum davidoddgeirs og binnilove og hvetjum við fólk til að fylgjast með þeim þar.

Eftir æsispennandi keppni var það að lokum Davíð sem fékk fleiri atkvæði og lét hann því vaða og aflitaði á sér hárið. Afraksturinn má sjá í myndbandinu hér fyrir ofan.

Þáttinn í heild sinni má síðan sjá hér á Vísir Sjónvarp.


Tengdar fréttir

Létu illum látum í lægðinni í Reykjavík

„Við ákváðum að finna skemmtilega leið til að eyða tveimur dögum í Reykjavík. Þetta endaði á því að verða blautur þáttur, eins og þeir eiga að vera,“ segir Davíð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×