Innlent

Aflaverðmæti dregist saman

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Verðmæti botnfiskafla í mars var minna en í  fyrra.
Verðmæti botnfiskafla í mars var minna en í fyrra. Fréttablaðið/pjetur
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 15,1 milljarði í mars og dróst saman um 21 prósent samanborið við mars 2015 þegar aflaverðmætið nam 19,2 milljörðum. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Þá segir að minna aflaverðmæti skýrist af minni botnfisk- og uppsjávarafla.

Verðmæti botnfiskafla nam 10,4 milljörðum í mars sem er 2,8 milljörðum minna en í mars 2015. Verðmæti uppsjávarafla dróst saman um rúm 25 prósent, nam 3,8 milljörðum samanborið við 5,1 milljarð í mars 2015.

Aflaverðmæti á 12 mánaða tímabili frá apríl 2015 til mars 2016 nam tæpum 143 milljörðum króna sem er 4,5 prósent samdráttur miðað sama tímabil ári fyrr. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júlí 2016




Fleiri fréttir

Sjá meira


×