Erlent

Afganskir hermenn hurfu í Bandaríkjunum

Mennirnir voru við æfingar í Massachusetts þegar þeir létu sig hverfa.
Mennirnir voru við æfingar í Massachusetts þegar þeir létu sig hverfa. Vísir/ap
Þriggja afganskra hermanna er nú leitað í Bandaríkjunum en þeir virðast hafa látið sig hverfa þegar þeir fóru í verslunarmiðstöð í Massachussetts. Mennirnir voru í ríkinu við æfingar með bandarískum kollegum sínum úr þjóðvarðliðinu.

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem slíkur atburður á sér stað en á dögunum hurfu tveir afganskir lögreglumenn sem voru í landinu í þjálfun hjá bandarísku eiturlyfjalögreglunni. Bandaríska lögreglan hafði hendur í hári þeirra og sendi þá heim en hermannanna þriggja er enn leitað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×