Skoðun

Áfengisfrumvarp er ógn við almannaheill

Við undirrituð viljum eindregið hvetja alþingismenn til þess að hafna frumvarpi sem liggur fyrir Alþingi um breytingu á lögum nr. 86 frá 2011 um verslun með áfengi og tóbak.



Íslendingar hafa unnið frábært forvarnastarf á undanförnum árum gegn áfengis- og vímuefnaneyslu barna og ungmenna, náðst hefur árangur sem vakið hefur eftirtekt annarra þjóða. Embætti landlæknis, samtök lækna, heilbrigðisstarfsfólk og fjölmargir fagaðilar sem vinna að heilsueflingu og velferðarmálum hafa varað við þeirri breytingu sem felst í samþykkt frumvarpsins. Bent er á að rannsóknir sýni að aukið aðgengi að áfengi leiðir til aukinnar áfengisneyslu, sérstaklega hjá ungmennum. Það á einnig eftir að auka tíðni einstaklingsbundinna og samfélagslegra vandamála samfara stórauknum samfélagslegum kostnaði.



Árangursríkustu forvarnirnar skv. Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni eru:



1. Takmörkun á aðgengi

2. Neyslustýringarskattur

3. Bann við áfengisauglýsingum



Verði frumvarpið samþykkt hafa tvær af þremur virkustu forvarnaaðgerðum í áfengisforvörnum verið afnumdar! Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að aðrar forvarnaaðgerðir verði efldar, aðgerðir sem rannsóknir sýna að hafa lítil sem engin áhrif á áfengisneyslu?



Við undirrituð bendum á að frumvarpið stangast á við stefnu stjórnvalda í áfengis- og vímuefnavörnum, vinnur gegn forvarnastarfi sveitarfélaga auk þess að stangast á við aðgerðaáætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar gegn lífsstílstengdum sjúkdómum sem og nýlega samþykktum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Einnig vinnur frumvarpið gegn ákvæðum í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Óskum við þess að alþingismenn taki alvarlega þær ábendingar og athugasemdir sem sérfræðingar hafa bent á. Hagsmunir og velferð heildarinnar og lýðheilsusjónarmið verði höfð að leiðarljósi og frumvarpinu hafnað.



Alþingismenn ættu að huga að hag íslenskra ungmenna í dag og í framtíðinni, frekar en rekstrarfræðilegum sjónarmiðum og breyta ekki sölufyrirkomulagi á áfengi sem er skynsamlegt eins og það er í dag. Við undirrituð myndum vilja sjá alþingismenn beita sér fyrir því að koma allri sölu á hvers konar tóbaki inn í verslanir ÁTVR.



Einnig viljum við gera athugasemd við það að málinu hafi ekki verið vísað til velferðarnefndar þar sem málið á heima, heldur eingöngu til allsherjar- og menntamálanefndar þar sem formenn beggja nefnda eru flutningsmenn áðurnefnds frumvarps.

Rut Sigurðardóttir

frístunda- og forvarnafulltrúi Sandgerðisbæjar

Guðrún Björg Sigurðardóttir

félagsmálastjóri Sandgerði, Garðs og Voga



Guðbrandur J. Stefánsson

íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Garðs



Stefán Arinbjarnarson

frístunda- og menningarfulltrúi sv. Voga

Björg Erlingsdóttir

sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar

 



Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×