Innlent

Afar skiptar skoðanir innan VG með ákvörðun Sóleyjar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Líf hefur til þessa ekki viljað tjá sig um málið við Vísi og vísað á Sóleyju sem ekki hefur látið ná í sig.
Líf hefur til þessa ekki viljað tjá sig um málið við Vísi og vísað á Sóleyju sem ekki hefur látið ná í sig. Vísir/GVA
Nokkuð er síðan Sóley Tómasdóttir upplýsti valda aðila um plan sitt að taka sjálf við sem formaður mannréttindaráðs borgarinnar og ýta þar með flokksystur sinni, Líf Magneudóttur, til hliðar. 

Fjölmargir vissu af planinu áður en það barst til eyrna Lífar. Vísir greindi frá plani Sóleyjar síðdegis í gær sem var svo staðfest með kosningu á borgarstjórnarfundi um níuleytið. Sex borgarfulltrúar sátu hjá við kosninguna en allajafna greiða fulltrúar annarra flokka atkvæði með breytingum innan annarra flokka.

Annað dæmi sem vakti athygli þar sem fulltrúar annarra flokka tóku vissa afstöðu til breytinga innan eins flokks var við skipun Gústafs Níelssonar í mannréttindaráð í upphafi árs. Skipunin olli miklum deilum eins og frægt er orðið og var dregin til baka.


 

Líf Magneudóttir, varaformaður skóla-og frístundaráðs Reykjavíkurborgar og fráfarandi formaður mannréttindaráðs.
Líf hefur til þessa ekki viljað tjá sig um málið við Vísi og vísað á Sóleyju sem ekki hefur látið ná í sig. Þessa stundina er hún á leiðinni á loftlagsráðstefnuna í París. Samkvæmt heimildum Vísis hefur hitinn verið svo mikill vegna málsins að lagt hefur verið til að fá vinnusálfræðing til þess að miðla málum. Ekki hefur þó komið til þess enn.

Fólk skiptist nokkuð í fylkingar innan borgarstjórnarflokks vinstri grænna og í flokknum almennt. Sóley nýtur stuðnings Svandísar Svavarsdóttur þingflokksformanns sem dæmi. Hins vegar er Eyrún Eyþórsdóttir, varamaður VG í mannréttindaráði, á væng með Líf.

Eyjan greinir frá því að Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, hafi verið andvíg ákvörðun Sóleyjar og reynt að tala um fyrir henni en án árangurs. Sóley hafi hins vegar sagt flokksfélögum að ákvörðunin væri tekin í samráði við Katrínu og Svandísi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×