Lífið

Áfalli lýkur aldrei

Guðjón Davíð Karlsson fer með burðarhlutverk í Eldhafi í Borgarleikhúsinu.
Guðjón Davíð Karlsson fer með burðarhlutverk í Eldhafi í Borgarleikhúsinu. Mynd/Grímur Bjarnason
„Ástæða þess að þetta verk er spennandi fyrir Borgarleikhúsið og okkur sem listamenn er að það spyr brýnnar spurningar: Hvort mennskan geti lifað það af að horfast í augu við hryllinginn," segir Jón Páll Eyjólfsson, leikstjóri verksins Eldhafs eftir Wajid Mouwad sem frumsýnt er á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld.

Atburðarás Eldhafs er í stórum dráttum á þá leið að tvíburarnir Símon og Janine, sem leiknir eru af Guðjóni Davíð Karlssyni og Láru Jóhönnu Jónsdóttur, missa móður sína en með hlutverk hennar fer Unnur Ösp Stefánsdóttir. Við lestur erfðaskrárinnar kemur í ljós að systkinin eiga föður á lífi og bróður sem þau vissu ekki af. Þau fá það verkefni, samkvæmt hinstu ósk móðurinnar, að afhenda föðurnum og bróðurnum umslag í eigin persónu.

„Þar hefst barátta verksins þar sem fortíð móðurinnar afhjúpast, en hún reynist ekki sú kona sem hún sagðist vera. Sannleikurinn er oft svo hræðilegur að það er ekki hægt að segja hann, heldur verður að uppgötva hann," útskýrir Jón Páll.

Leikstjórinn segir Eldhaf í grunninn fjalla um nauðsyn þess að hafa hugrekki til að halda á sársaukanum, hversu óhugnanlegur sem hann er, því sá hæfileiki geri okkur að manneskjum.

„Áfalli lýkur aldrei. Við erum alltaf í áfalli, en reynum annað hvort að gleyma því eða verðum sterkari með því að takast á við það. Nútímamaðurinn sér hrylling stríðs og hamfara á hverjum degi. Maður veltir fyrir sér hvar samfélagið er statt þegar ungir hermenn í Afganistan hafa verið þjálfaðir til að brjóta stærsta tabúið af öllum, að drepa aðra manneskju, en svo verður fólk hissa og hneykslast á því þegar myndband birtist af þeim að kasta af sér þvagi á lík óvinarins. Svo hitt, sem sló mig enn meira, að þegar myndbandið var sýnt þurfti að setja svart yfir getnaðarlimina á þeim. Þá þurfti að ritskoða og vernda okkur. Mannskepnan er á skrýtnum stað og ekki góðum." -kg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×