Fótbolti

Áfall fyrir Real Madrid

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Casemiro verður frá keppni næstu vikurnar vegna fótbrots.
Casemiro verður frá keppni næstu vikurnar vegna fótbrots. vísir/getty
Casemiro, leikmaður Real Madrid, fótbrotnaði í leiknum gegn Espanyol um helgina og verður frá keppni næstu vikurnar.

Casemiro fór meiddur af velli um miðjan fyrri hálfleik í sigrinum á Espanyol og Real Madrid staðfesti í gær að Brasilíumaðurinn væri fótbrotinn.

Casemiro lék ekki með Real Madrid þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Villarreal á miðvikudaginn. Real Madrid var búið að vinna 16 deildarleiki í röð fyrir leikinn gegn Villarreal.

Hinn 24 ára gamli Casemiro hefur verið í lykilhlutverki hjá Real Madrid eftir að Zinedine Zidane tók við liðinu. Hann lék alls 34 leiki á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×