Innlent

Áfall að lenda á lista Rússa

Ingvar Haraldsson og Svavar Hávarðsson skrifar
Helgi Anton Eiríksson
Helgi Anton Eiríksson
„Það væri áfall fyrir okkur, og fyrir hagsmuni Íslands og okkar sjávarútvegsfyrirtækja, að lenda á þessum lista. Þetta er okkar mikilvægasti markaður fyrir uppsjávarafurðir, og sérstaklega makríl núna þegar við erum í miðri makrílvertíð,“ segir Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood International (ISI), en fyrirtækið er einn stærsti útflytjandi íslensks sjávarfangs, þar á meðal til Rússlands.

Rússar settu í gær innflutningsbann á ýmis matvæli frá Evrópusambandinu, Bandaríkjunum, Noregi, Kanada og Ástralíu, meðal annars sjávarafurðir. Bannið er svar við viðskiptaþvingunum vestrænna ríkja sem taka þátt í refsiaðgerðum vegna afskipta Rússa af innanríkismálum í Úkraínu.

Samkvæmt upplýsingum frá rússneska sendiráðinu hér á landi er Ísland ekki á listanum, en fulltrúar sendiráðsins vildu ekki tjá sig um hvort það gæti breyst. Tilkynnt hefur verið að listinn sé „sveigjanlegur“.

Helgi segir að nauðsynlegt sé fyrir Íslendinga að stíga varlega til jarðar í samskiptum sínum við Rússa á næstu dögum og vikum.

Vertíð á fullu Ekkert land kaupir meira af makríl frá Íslandi en Rússland, sem í fyrra keypti 30 prósent af öllum uppsjávarfiski héðan. mynd/óskar
Aðspurður hvort tækifæri liggi í viðskiptabanni á samkeppnislönd á mörkuðum með sjávarafurðir segir Helgi það vera tvíeggjað sverð. Verð geti hækkað á íslenskum vörum í Rússlandi með aukinni eftirspurn, en að sama skapi gæti umframframboð á öðrum mörkuðum valdið ójafnvægi.

„Það er með öllu óvíst hvað þessi höft vara lengi, þó að talað sé um eitt ár. Hins vegar er um gríðarlegt magn vöru að ræða og erfitt að sjá hvernig þetta gengur upp fyrir rússneskt samfélag. Þeir eru ekki sjálfbærir með þennan varning, og langt frá því,“ segir Helgi. „Ef rússnesk fyrirtæki missa möguleika til að stunda rótgróin viðskipti, veikjast þau hratt.“

Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir Rússland og Úkraínu hafa flutt inn sjávarafurðir frá Íslandi fyrir um 30 milljarða á síðasta ári, eða hátt í 10 til 12 prósent af heildarútflutningi sjávarafurða frá Íslandi. Miklir hagsmunir séu í húfi og full ástæða til að hafa áhyggjur af stöðunni.

Bannið mun hafa mikil áhrif í Noregi. Á síðasta ári fluttu Norðmenn út sjávarafurðir til Rússlands fyrir 120 milljarða íslenskra króna sem er um ellefu prósent af árlegri sölu norskra sjávarafurða. „Við höfum áhyggjur af því að markaðurinn hrynji,“ sagði Ola Braanaas sem rekur Frida Management, eitt stærsta fiskeldisfyrirtæki Noregs, í samtali við Aftenposten.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×