FIMMTUDAGUR 23. MAÍ NÝJAST 13:03

Jóhanna hissa á nýja stjórnarsáttmálanum

FRÉTTIR

Af stjórnmálamenningarástandi

Fréttablaðið Fastir pennar 26. apríl 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Alþingi ályktar að brýnt sé að starfshættir þingsins verði teknir til endurskoðunar. Mikilvægt sé að Alþingi verji og styrki sitt grundvallarhlutverk.

Alþingi ályktar að taka verði gagnrýni á íslenska stjórnmálamenningu alvarlega og leggur áherslu á að af henni sé dreginn lærdómur.

Alþingi ályktar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórnvöldum, stjórnmálamönnum og stjórnsýslu, verklagi og skorti á formfestu.

Þetta stóð í ályktun um viðbrögð Alþingis við skýrslu rannsóknarnefndarinnar, sem allir 63 alþingismennirnir okkar samþykktu samhljóða 28. september 2010. Í sömu ályktun var ákveðið að ráðast í endurskoðun á þingsköpum Alþingis.

Þrátt fyrir góð áform og heitstrengingar virðist lítið hafa breytzt í störfum þingsins. Fréttablaðið sagði frá því í gær að rétt eina ferðina ríkti óvissa um þingstörfin. Engar horfur eru á að takist að afgreiða vel á annað hundrað þingmál ríkisstjórnarinnar fyrir sumarleyfi þingsins í maílok og þingið er enn og aftur farið að funda fram á nætur, án þess þó að fjöldi mála komist til meðferðar í þingnefndum.

Framundan eru því – enn einu sinni – enn fleiri næturfundir, enn fleiri nefndarfundir í tímahraki, enn fleiri mistök við meðferð þingmála og væntanlega líka nokkrar málþófsumræður þar sem þingmenn bulla eða lesa upp úr símaskránni.

Svo kenna menn hver öðrum um eins og krakkar í sandkassa og hafa kannski eitthvað til síns máls. Stjórnarþingmenn segja stjórnarandstöðuna beita málþófi þannig að mál komist ekki til nefndar. Stjórnarandstaðan bendir á að stjórnin hafi hrúgað tugum mála inn í þingið rétt fyrir skilafrest og eigi sjálf í mesta basli með að forgangsraða þeim.

Nú er búið að breyta þingsköpunum; það gerðist í fyrrahaust. Breytingarnar áttu meðal annars að stuðla að skilvirkari og faglegri vinnubrögðum með því að knýja stjórnina til að skila inn þingmálum með lengri fyrirvara þannig að „þingmönnum gefist gott ráðrúm til að taka þau til faglegrar skoðunar, upplýstrar málefnalegrar umræðu og afgreiðslu" eins og það var orðað í greinargerð með frumvarpinu.

Þetta hefur greinilega ekki dugað. Hver er þá vandinn? Þarf að breyta þingsköpunum meira, eða er vandamálið kannski frekar stjórnmálamennirnir sjálfir og stjórnmálamenningin svokallaða?

Í Fréttablaðinu í gær var haft eftir heimildarmönnum á þingi að andrúmsloftið á löggjafarsamkundunni væri „við frostmark" og dómur Landsdóms hefði ekki bætt þar úr skák. Hvernig geta kjörnir fulltrúar okkar leyft sér að vera bara í fýlu og marklitlu hnútukasti hver við annan þegar mörg brýn hagsmunamál þjóðarinnar krefjast úrlausnar? Þeir eiga að koma sér upp úr hinum gömlu skotgröfum stjórnar og stjórnarandstöðu, fullorðnast og snúa sér í sameiningu að „faglegri skoðun" og „upplýstri, málefnalegri umræðu". Upp á hvort tveggja vantar sárlega á Alþingi þessa dagana.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fastir pennar 23. maí 2013 06:00

Hrifla og heimurinn

Margt í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar bendir til að hún geti staðið undir því markmiði sínu að hefja "nýja sókn í þágu lands og þjóðar“. Meira
Fastir pennar 22. maí 2013 06:00

Eru mannasiðir voðalega 2007?

Dónaskapur, illmælgi, hótanir og heimska þeirra sem virkastir eru í athugasemdum við fréttir vefmiðlanna hafa verið í sviðsljósinu undanfarið. Meira
Fastir pennar 21. maí 2013 09:30

Genin mín, genin þín og "tæknilæknisfræði“

Mikið hefur verið rætt um gen og áhrif þeirra á myndun sjúkdóma undanfarna daga í fjölmiðlum og sitt sýnist hverjum. Meira
Fastir pennar 21. maí 2013 07:00

Transfólk kemur út úr skápnum

Konum á Íslandi fjölgaði um fimm í síðustu viku, en körlunum fækkaði að sama skapi. Þannig orðaði sænski skurðlæknirinn Gunnar Kratz það er rætt var við hann í úttekt í helgarblaði Fréttablaðsins. Kra... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 12:00

Vandinn við hvíta lygi

Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 06:00

300 ára gamlar kennsluaðferðir

Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 15:00

Selfoss og Maribo

Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 11:01

Öflugri hópur, betri fréttir

Fréttastofur 365 miðla sameinast í eina. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Júróvísa

Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Tvær frjálsar hendur, slef og tunga

Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí... Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 07:00

Þvingur, lím og stærðfræðijöfnur

Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að. Meira
Fastir pennar 15. maí 2013 09:00

Stokka upp eða láta það springa?

Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums... Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:30

Blindur, brúnn og hrukkóttur

Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna. Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:15

Ofbeldi gegn ófæddum börnum

Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Valfrelsi með humrinum

Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Lækningar fremur en refsingar

Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga. Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

Sumarbústaðir þjóðarinnar

Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek... Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

45.000 fleiri í hvalaskoðun

Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik... Meira
Fastir pennar 09. maí 2013 07:00

Sveitarfélögum fækkað um 62

Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ... Meira
Fastir pennar 08. maí 2013 07:00

Tækifæri í tollalækkun

Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum... Meira
Fastir pennar 07. maí 2013 07:00

Neðrideildarleikur í Noregi

Dómarar í knattspyrnuleikjum meistaradeildar karla fá 156% hærri laun en þeir sem dæma leiki í efstu deild kvenna. Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Kaupum álfinn

Í dag hefst árleg álfasala SÁÁ og stendur út vikuna. SÁÁ eru félagasamtök sem reka sjúkrahúsið Vog og fjölda annarra meðferðarstofnana. Álfasalan er liður í að fjármagna barna- og fjölskyldudeild SÁÁ.... Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Lærum að leika okkur

Þegar maður horfir á enska sakamálamynd þátt í sjónvarpinu sem gerð er upp úr bók eftir Agöthu Christie er ánægjan ekki endilega fólgin í því að brjóta heilann um plottið – er það ekki alltaf un... Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Umtalsverð áhætta í fjármálakerfinu

Þessi jákvæða þróun gefur þó ekki tilefni til að slakað sé á árvekni gagnvart þeirri umtalsverðu áhættu í fjármálakerfinu sem enn er til staðar.“ Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Huga verður að grunninum

Eftirtektarverður árangur frumkvöðlanna sem að sprotafyrirtækinu CLARA standa sýnir í hnotskurn um hvers konar verðmæti er að tefla í þessum í geira nýsköpunar og tækni. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Af stjórnmálamenningarástandi
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000