Af fæðuöryggi Íslendinga og byggðarsjónarmiðum

Fréttablaðið Aðsendar greinar 21. febrúar 2012 06:00
Landbúnaður
Valur Þráinsson
nemi við hagfræðideild Amsterdamháskóla
Landbúnaður Valur Þráinsson nemi við hagfræðideild Amsterdamháskóla
Í Fréttablaðinu 27. janúar sl. heldur efnahags- og viðskiptaráðherra því fram að ekki sé ráðlegt að kollvarpa landbúnaðarstefnunni á Íslandi. Ástæðan sem hann nefnir er sú að þótt það sé jákvætt í samkeppnislegu tilliti að afnema innflutningshöft þá ætti íslensk landbúnaðarframleiðsla sér ekki grundvöll ef innflutningur væri óheftur og þ.a.l. sé óráðlegt að afnema höftin.

Einnig nefnir ráðherrann að landbúnaðarframleiðsla sé nauðsynlegur þáttur af fæðuöryggi Íslendinga. Ráðherrann gleymir þó að minnast á ábatann fyrir neytendur ef innflutningur á landbúnaðarvörum væri frjáls. Hann minnist heldur ekki á það að samkeppnislegt aðhald við innlenda framleiðendur mundi aukast né færir hann rök fyrir tengslum núverandi fyrirkomulags innlendrar framleiðslu og fæðuöryggis.

Illskiljanlegt er hvers vegna ráðherrann telur það ekki geta þjónað hagsmunum Íslendinga að íslenskir neytendur njóti sömu kjara á landbúnaðarvörum og þekkist í nágrannalöndunum. Órökstudd er sú fullyrðing hans að íslensk landbúnaðarframleiðsla eigi sér ekki grundvöll ef innflutningur væri óheftur. Reynsla Íslendinga virðist einmitt benda til hins gagnstæða. Sem dæmi hefur garðyrkjan dafnað þrátt fyrir að tollar hafi verið felldir niður af tómötum, gúrku og papriku, auk þess sem tollvernd annarra afurða var breytt árið 2002. Mögulegt virðist því að tryggja að íslenskur landbúnaður starfi áfram á sama tíma og tollar á landbúnaðarvörum verði afnumdir. Verða færð frekari rök fyrir því síðar í greininni.
Háir innflutningstollar og ríkisstyrktur landbúnaður eru ekki til þess fallnir að tryggja fæðuöryggi Íslendinga. Meirihluti íslenskrar landbúnaðarframleiðslu byggir á innflutningi aðfanga og er í raun alfarið háður innflutningi á t.d. á tilbúnum áburði til þess að bera á túnin, innfluttra tækja til að yrkja landið, innflutts eldsneytis til að knýja þau áfram, innflutts plasts sem notað er til að plasta heyrúllur og svo mætti lengi áfram telja. Ef stjórnvöld ætluðu í raun að tryggja fæðuöryggi yrðu þau augljóslega að koma sér upp birgðum af þeim aðföngum sem landbúnaðurinn þarf.

Ríkið þyrfti að eiga birgðir af tilbúnum áburði, olíu og fóðri sem grípa mætti til svo tryggja mætti getu landbúnaðarins til að tryggja fæðuöryggi. Þá mætti hins vegar spyrja: af hverju ríkið gæti ekki eins átt birgðir matvæla? Eða enn frekar, af hverju ætti fiskútflytjandinn Ísland að hafa áhyggjur af því að svelta? Er ekki fiskur matur?

Sjá má á nýlegum dæmum frá Noregi að innflutningstollar og ríkisstyrktur landbúnaður tryggir ekki fæðuöryggi. Um jólin glímdi norska þjóðin við mikinn smjörskort vegna takmarkana á innlendri framleiðslu og innflutningi. Smjörskorturinn hefur síðan leitt til þess að bændur í Noregi hafa dregið úr slátrun nautgripa til þess að framleiða meiri mjólkurvörur sem leiðir síðan aftur til skorts á nautakjöti. Óhætt er því að fullyrða að áhersla á innlenda framleiðslu leiðir ekki af sér meira fæðuöryggi. Þvert á móti.

Það að hefta innflutning til þess að vernda innlenda framleiðslu fyrir erlendri samkeppni getur ekki á neinn hátt verið hagkvæm byggðarstefna. Með þessari aðferðarfræði er almenningur að greiða fyrir þessa millifærslu á fjármunum á tvenna vegu. Í fyrsta lagi borga neytendur skatta sem eru að hluta til nýttir til þess að fjármagna greiðslur til bænda. Í öðru lagi þurfa neytendur að greiða hærra verð fyrir innlenda framleiðslu en sambærilega framleiðslu erlendis frá vegna innflutningshafta.

Þessi síðari greiðsla er ógegnsæ og hætt við að neytendum sé ekki ljóst hver raunverulegur kostnaður haftanna er. Mun nær væri að skilgreina betur hvers konar landbúnaði Íslendingar vilja borga með og á hvaða svæðum, og greiða bændum þá beint fyrir að halda þeirri framleiðslu úti – og leyfa innflutning á landbúnaðarvörum að vera frjálsum. Það þarf að skilgreina þau markmið sem Íslendingar vilja setja sér með innlendum landbúnaði, t.d. hvar á landinu við viljum hafa landbúnað, hvaða form landbúnaðar og svo framvegis. Síðan ætti að greiða beint fyrir það.

Auðveldlega er hægt að halda til haga byggðasjónarmiðum og fæðuöryggi á sama tíma og neytendum er gefið meira frelsi til þess að geta valið hvort þeir vilji kaupa innlenda eða erlenda landbúnaðarvöru. Ef stjórnmálamönnum er alvara með því að tryggja fæðuöryggi þyrfti að takast á við það af heiðarleika hvernig best er að búa sig undir það ef verslun við umheiminn mundi skyndilega lokast. Það verður tæplega gert með landbúnaði sem er alfarið háður innfluttum aðföngum. Nauðsynlegt er að takast á við þá spurningu hvaða landbúnað Íslendingar vilja, hvaða hlutverki hann á að gegna og hvað þeir eru tilbúnir að greiða fyrir. Umfang og fyrirkomulag styrkja á að endurspegla þessar óskir þjóðarinnar en ekki fela þær inni í tollvernd. Þá mundi verða mögulegt að aflétta tollum og öðrum innflutningshindrunum sem mundi skila sér í meiri fjölbreytni og lægra vöruverði fyrir neytendur.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Má bjóða þér á stefnumót?

Sesselja Thorberg og Magnús Sævar Magnússon giftu sig fyrir sjö árum. Þau fara á stefnumót...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ábendingar vegna leiðara

Í leiðara Fréttablaðsins í gær eru settar fram staðhæfingar tengdar gjaldeyrisútboðum Seðl...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Álfar út um allt

Það er stundum talað um að í Hafnarfirði séu fleiri álfar en annars staðar á landinu. Ekki...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Hafið: Vagga lífsins og fjöregg Íslands

Hafið er gullkista Íslendinga. Gjöfulir fiskistofnar umhverfis landið eru þeir sjóðir sem ...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 18:10

Óupplýstir spekingar í Silfrinu

Ekki er furða að umræðan um forsetaembættið sé á villigötum þegar ritstjóri stærsta prentm...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Týndur á Paddington

Á fyrsta áratug ævi minnar hvarf pabbi hægt og örugglega inn í myrkur sjúkdóms sem tætti h...  

Meira
Aðsendar greinar 11. maí. 2012 06:00

Kostnaður hagsmunaaðila í stjórnmálabaráttu

Eftir baráttu ýmissa vinstrimanna fyrir upplýsingaskyldu og hámörkum á fjárframlög til stj...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 17:01

Hindra gjaldeyrishöft að næsta kynslóð sé étinn út á gaddinn?

Það er kannski tímabært að rifja upp hvers vegna gjaldeyrishöftin voru sett á Íslandi. Síð...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brandarinn um Boot Camp

Forsvarsmanni líkamsræktarstöðvar Boot Camp sem ætlunin er að taki til starfa í Elliðaárda...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:02

Dauðyflin í Samfylkingunni

,,Þú ert bara foringjahollt dauðyfli sem styður leiðtoga þinn í þeirri helreið sem vinstri...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mér líður ógeðslega illa en fæ ekki tíma hjá geðlækni fyrr en eftir hálft ár

Ég er svo geðveikur þegar ég er í skólanum, ég er bara í skólanum og get ekki gert neitt a...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lítill ávinningur af skimun fyrir ristilkrabbameini

Árangur af skimun fyrir ristilkrabbameini er lítill séð frá lýðheilsusjónarmiði. Nýjar ran...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Er ekki nóg atvinnuleysi?

Ef Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra fær að ráða, þá fer störfum við íslenska bjórframl...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Best í heimi

Þegar ég reyndi að sigrast á nánast óyfirstíganlegu þvottafjalli heima hjá mér fór ég að h...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Brostnar vonir

Pyngjur landsmanna léttast og færri krónur eru eftir um hver mánaðamót. Norræn velferðarst...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tveir og hálfur milljarður í sérstakar vaxtaniðurgreiðslur – það munar um minna

Tugþúsundir húseigenda um allt land fengu fjármuni frá ríkissjóði inn á bankareikninga sín...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þungur kross brotaþola

Ung stúlka tilkynnir nauðgun í miðborg Reykjavíkur. Í umræðum um málið á netinu lætur ungu...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:04

Vændi og mansal er ekki það sama

Í daglegri umræðu hefur mansali og vændi oft verið blandað svo saman að fæstir kunna skil ...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 12:00

Sýndarveruleikinn

Hvað skiptir máli í lífinu? Nú, ég held auðvitað að þetta sé sjálf lífsgátan. Ég myndi nef...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Þrenns konar veiðistjórn

Dómur Landsdóms frá 23. apríl 2012 setur ný viðmið og mörk í þjóðlífinu. Þar virðist horfi...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Af hverju látum við ekki útgerðarmennina sjálfa ákveða hæfilegt veiðigjald?

Útvegsmannafélagið beinir því í auglýsingum til sveitarstjórna að leggjast gegn kvótafrumv...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Við borgum ekki

Ég veit ekki nema gleymdur sé nú sífelldur áróður Suðurnesjamanna um að þáverandi umhverfi...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Lyktarmengun kallar á tafarlausar aðgerðir

Nýverið var haldinn íbúafundur í Mosfellsbæ um lyktarmengun frá urðunarstað höfuðborgarsvæ...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Um smálán

Allt frá því að smálánafyrirtæki hófu innreið sína á íslenskan lánamarkað höfum við leitað...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Gullgæsin

Eitt mesta hitamálið þessa dagana er nýjasta kvótafrumvarp ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðard...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Tölvuleikir breyta þér ekki í skrímsli

Ég rakst á forsíðufrétt á Mbl.is með fyrirsögninni "Spilaði tölvuleik í heilt ár“....  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Mannleg meindýr

Menn eru misjafnir og samskipti þeirra með ýmsu móti. Sem betur fer er meirihlutinn gott f...  

Meira
Aðsendar greinar 10. maí. 2012 06:00

Bann við mismunun

Jafnrétti er hornsteinn mannréttinda, sá grunnur sem viðhorf okkar og samfélag byggja á. A...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Af fæðuöryggi Íslendinga og byggðarsjónarmiðum