Bíó og sjónvarp

Ævisaga goðsagnarinnar Miles Davis í bígerð

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Don Cheadle er afar sannfærandi sem Miles Davis.
Don Cheadle er afar sannfærandi sem Miles Davis.
Leikarinn og leikstjórinn Don Cheadle hóf tökur á myndinni Miles Ahead í júlí en það er ævisaga um djassgoðsögnina Miles Davis. Mun þetta vera fyrsta leikna myndin um meistara Miles. Cheadle kláraði þær tökur sem fara fram í Cincinatti-borg í vikunni samkvæmt frétt Cincinatti.com en ekki er ljóst hvenær myndin verður fulltilbúin.

Kvikmyndin hefur verið í vinnslu frá árinu 2008 en Cheadle ákvað að framleiða myndina sjálfstætt. Myndin var hópfjármögnuð á síðunni Indiegogo og naut ekki stuðnings kvikmyndafyrirtækja Hollywood.

Cheadle leikur sjálfur Miles og Ewan McGregor leikur tónlistarblaðamann Rolling Stone-tímaritsins. Gamli lærlingur og samstarfsmaður Miles, Herbie Hancock, sér um tónlistina.

Myndin mun ekki fjalla um allt lífshlaup meistarans heldur er fókusinn á því fimm ára tímabili í lífi hans á sjöunda áratugnum sem kallað er „þögla tímabilið“. Þá gaf Miles ekki neina tónlist út og hélt sig til hlés en gaf síðan út meistaraverkið In a Silent Way árið 1968. Sú plata var byrjunin á „rafmagnaða“ tímabili Miles þar sem hann blandaði djassi saman við sýrurokk. Hlaut hann bæði lof og gagnrýni fyrir á sínum tíma þó að flestir séu nú sammála að rafmögnuðu plötur hans séu meistarastykki.

Hér fyrir neðan má hlusta á þessa tímalausu plötu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×