Íslenski boltinn

Ævintýri nýliða FH heldur áfram í Pepsi-deild kvenna | Úrslit kvöldsins

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ævintýri nýliða FH í Pepsi-deild kvenna hélt áfram í kvöld þegar liðið vann KR í Vesturbænum og komst þar með upp að hlið Stjörnunnar á toppi deildarinnar.

Stjarnan og FH eru þar með í tveimur efstu sætunum bæði í Pepsi-deild karla og kvenna það sem af er tímabilinu.

Stefán Karlsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á leik Stjörnunnar og Fylkis og náði þessum myndum hér fyrir ofan.

FH vann 1-0 sigur á KR í Vesturbænum í kvöld og hefur þar með náð í sjö stig út úr fyrstu þremur leikjum sínum. Markvörðurinn Jeannette J Williams hefur enn ekki fengið á sig mark í deildinni.

Fjórtán ára og fimmtán ára stelpur hafa tryggt FH-liðinu tvo fyrstu sigra sumarsins í Pepsi-deildinni, Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (fædd árið 2001) upp á Skaga í 1. umferð og Guðný Árnadóttir (fædd árið 2000) á KR-vellinum í kvöld.

Guðný Árnadóttir skoraði sigurmarkið með skoti beint úr aukaspyrnu strax á 14. mínútu leiksins eins og fram kom í textalýsingu frá leiknum á fótbolti.net.

FH nýtti sér það að Stjörnukonur töpuðu sínum fyrstu stigum í sumar þegar liðið gerði markalaust jafntefli á heimavelli á móti Fylki. Stjarnan hafði skorað sjö mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum.

Lauren Elizabeth Hughes hefur reynst Selfossliðinu vel það sem af er í sumar en hún skoraði sigurmarkið á móti ÍBV í 1. umferð og annað markið í 2-0 sigri á ÍA upp á Akranesi í kvöld.  Eva Lind Elíasdóttir skoraði seinna mark Selfoss í kvöld en hún lagði upp sigurmark Hughes í 1. umferðinni.



Úrslit og markaskorarar í 3. umferð Pepsi-deildar kvenna:

Breiðablik - Þór/KA 1-1

1-0 Svava Rós Guðmundsdóttir (22.), 1-1 Anna Rakel Pétursdóttir (35.).

ÍBV - Valur 0-1

0-1 Margrét Lára Viðarsdóttir (33.).

ÍA - Selfoss 0-2

0-1 Lauren Elizabeth Hughes (30.), 0-2 Eva Lind Elíasdóttir (73.)

KR - FH 0-1

0-1 Guðný Árnadóttir (14.)

Stjarnan - Fylkir 0-0



Upplýsingar um markaskorara eru meðal annars fengnar frá ksi.is, fótbolta.net og úrslit.net.

Eva Lind Elíasdóttir

Audrey Rose Baldwin hélt marki Fylkis hreinu á móti Hörpu Þorsteinsdóttur og félögum í kvöld.Mynd/Stefán



Fleiri fréttir

Sjá meira


×