Menning

Ætlum að vera í sveiflu sumarsins

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hundrað og tíu manns syngja í Hamrahlíðarkórunum og Þorgerður stjórnar eins og henni einni er lagið.
Hundrað og tíu manns syngja í Hamrahlíðarkórunum og Þorgerður stjórnar eins og henni einni er lagið. Mynd/Kent Lárus Björnsson
Löng hefð er komin á það hér í Hamrahlíðinni að halda hressandi og gleðjandi dag þegar við erum að sleppa takinu á skólanum og hlaupa út eins og kálfar á vori. Við köllum hann Vorvítamín,“ segir Þorgerður Ingólfsdóttir, stjórnandi Hamrahlíðarkóranna tveggja. Kórarnir ætla að fagna komu sumars og þýðvinda með tvennum tónleikum og annarri skemmtan í hátíðarsal skólans á morgun, uppstigningardag. Ókeypis er inn en á milli tónleikanna og eftir þá verða seldar kaffiveitingar, ágóði af sölu þeirra rennur í ferðasjóð kóranna.



„Það er alltaf mikill gleðigjafi að vinna með ungu fólki þó það sé ekki alltaf einfalt. Þarna verða syngjandi um 110 manns. Þetta verður rosa gaman,“ segir Þorgerður og tekur fram að allir séu velkomnir.

Fyrri tónleikarnir hefjast klukkan 14 og þeir seinni um klukkan 16. Þar er að finna blöndu gamalla gersema og nýrra og meðal annars verða flutt nokkur sumar- og ættjarðarlög sem allir ættu að geta sungið með kórunum.

„Tónleikarnir standa í um klukkutíma, hvorir fyrir sig og efnisskrá þeirra er ólík,“ segir Þorgerður. „Á þeim fyrri er alíslensk dagskrá. Þar er verið að flytja verk eftir Hróðmar Inga, Hafliða Hallgrímsson, Jórunni Viðar, Hjálmar H.  Ragnarsson, Jón Ásgeirsson og svo ætlum við að frumflytja verk eftir Þóru Marteinsdóttur við ljóð Einars Braga.

Á seinni tónleikunum verður blanda af íslenskum og erlendum verkum. Þar erum við með málmblásarahóp sem spilar með okkur í verki sem ég veit ekki til að hafi verið flutt á Íslandi, Viva la musica – eða Lifi tónlistin og þetta eru hljóðfæraleikarar úr kórnum.

Við flytjum Davíðssálm á hebresku og líka klassískar perlur eins og Ave Verum Corpus eftir Mozart með strengjaleikurum, líka úr kórnum. Svo eru íslensk verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Gunnar Reyni og Jón Nordal og þar er líka stórt verk eftir Hjálmar. Þar frumflytjum við líka verkið Mater dolorosa eftir Gunnar Andreas Kristinsson við ljóð Þorsteins Valdimarssonar.“

Auk tónleikanna verða ýmis skemmtiatriði á dagskránni. Gestum verður meðal annars boðið í dans við fjörugan leik salsabands Hamrahlíðarkóranna. „Við ætlum að vera í sveiflu sumarsins. Það eru krakkar úr hópnum sem spila salsa og önnur dansa og draga vonandi einhverja gesti fram á gólfið,“ segir Þorgerður glaðlega.

„Einnig verður bangsa- og dúkkuspítali opinn, Gettu betur-stofa og vísinda- og tilraunastofa svo allir ættu að fá eitthvað við sitt hæfi.

Ekki má gleyma sumarmarkaðinum. Þar er til dæmis hægt að kaupa óvissufræ sem búið er að planta í potta. Fólk verður bara að bíða fram eftir sumri eftir að vita hvort upp af því kemur paprikuplanta, gulrót eða blóm.

Það er mikið ímyndunarafl í gangi hér. Ég vona að okkur takist að kalla á sólina og hún verði með okkur sem lengst.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×