Sport

Ætlar í mál við breska lyfjaeftirlitið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Fury hefur oft gert grín að því að hann sé í lélegu formi. Getur hann því hafa notað ólögleg lyf?
Fury hefur oft gert grín að því að hann sé í lélegu formi. Getur hann því hafa notað ólögleg lyf? vísir/getty
Breski þungavigtarmeistarinn Tyson Fury er allt annað en sáttur við lyfjaeftirlitsnefndina í Bretlandi.

Í lok júní lak það í blöðin að Fury hefði fallið á lyfjaprófi. Hann neitaði umsvifalaust öllum sökum.

Smám saman hafa upplýsingar um málið lekið í fjölmiðla og Fury hefur því ákveðið að fara í mál við lyfjaeftirlitið.

Fury átti að berjast við Wladimir Klitschko í júlí en dró sig úr bardaganum vegna ökklameiðsla.

Fury varð WBA og WBO-meistari í nóvember er hann vann Klitschko.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×