Lífið

Ætlar ekki eyða tíu milljónum í lýtaaðgerðir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Glamúrfyrirsætan Katie Price er búin að fæða tvö börn síðustu tólf mánuði og hafa margir aðdáendur hennar velt því fyrir sér hvort hún ætli að láta lappa upp á líkama sinn með lýtaaðgerðum.

Katie blæs á sögur þess efnis að hún ætli að eyða tæpum tíu milljónum króna í lýtaaðgerðir í dálki sínum í tímaritinu Now. Daily Mail segir frá þessu.

„Tvö börn hafa vaxið inní mér á rétt tæpu ári og börnin mín eru í forgangi, ekki líkami minn,“ skrifar Katie. Hún segist setja sér markmið um hvernig hún vilji líta út en ætli ekki að ná þeim fyrr en hún er tilbúin.

Katie eignaðist dóttur fyrir tímann þann 4. ágúst síðastliðinn með eiginmanni sínum Kieran Hayler. Þau gengu í það heilaga í janúar í fyrra en fyrir áttu þau soninn Jett sem kom í heiminn í ágúst í fyrra.

Katie á einnig soninn Harvey, fæddur 2002, með knattspyrnumanninum Dwight Yorke, soninn Junior, fæddur 2005, og dótturina Princess, fædd 2007. Tvö síðarnefndu börnin á Katie með tónlistarmanninum Peter Andre.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×