Lífið

Ætlar að stofna Gleðilegt nýtt hár

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Þegar ég var nýorðin fimm ára fékk Tommi í Stuðmönnum mig til að syngja og spila á píanó á afmælistónleikum Pauls McCartney." segir Jarún Júlía.
"Þegar ég var nýorðin fimm ára fékk Tommi í Stuðmönnum mig til að syngja og spila á píanó á afmælistónleikum Pauls McCartney." segir Jarún Júlía. Fréttablaðið/Ernir Eyjólfsson
Jarún Júlía sló í gegn á Stuðmannatónleikunum um síðustu helgi og er því spurð:

Hvernig fannst þér að koma fram á Stuðmannatónleikum? „Það var mjög gaman. Ég hef aldrei sungið með þeim áður.“

Hefur þú sungið áður fyrir framan fullt af fólki? „Já, já, oft. Þegar ég var nýorðin fimm ára fékk Tommi í Stuðmönnum mig til að syngja og spila á píanó á afmælistónleikum Paul McCartney sem hann var að skipuleggja í Eldborg í Hörpunni. Það var bara gaman. Svo var ég líka að syngja og dansa í jólaleikriti Skoppu og Skrýtlu í Borgaleikhúsinu um síðustu jól og verð þar aftur núna um jólin.“

Hvaða lag finnst þér skemmtilegast að syngja? „Halo með Beyoncé.“

Ertu byrjuð í tónlistarskóla? „Ég hef verið hjá Hönnu Valdísi í Suzuki-skólanum síðan ég var fjögurra ára að læra á píanó og á sumrin verið bæði hjá henni og Þorbjörgu í Retro Stefson. Mér finnst gaman að læra á píanó.“

Áttu þér eftirlætis tónlistarmann/konu? „Það eru pabbi (Jakob Frímann) og Katy Perry.“

Hvernig leikur þú þér oftast? „Ég föndra mjög mikið.“

Upplifðir þú eitthvert ævintýri í sumar (ferðalag? námskeið? útilegu?) „Ég fór í ferðalag með skólanum í vor upp í Vindáshlíð og við gistum þar í tvær nætur, líka á afmælisdaginn minn 19. maí. Svo ferðaðist ég um Ítalíu í sumar, það var æðislega gaman.“

Í hvaða skóla ertu? „Ég er í Barnaskólanum í Reykjavík, rétt hjá Nauthólsvík og Háskólanum í Reykjavík. Þetta er svona Hjallastefnuskóli, mjög fínn.“

Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? „Ég ákvað þegar ég var fjögurra ára að stofna hárgreiðslustofuna Gleðilegt nýtt hár. Á skiltinu á líka að standa Happy new hair fyrir útlendingana. Stofan á að vera á efri hæð í miðbænum og á neðri hæðinni verður veitingastaður. Pabba og mömmu fannst þetta dálítið skrítin hugmynd hjá mér en mér finnst hún bara sniðug.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×