Innlent

Ætlar að nota hluta vinningsins til að skipta um húsnæði

Birgir Olgeirsson skrifar
Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að konan og maðurinn hennar skáluðu í kampavíni til að halda upp á vinninginn.
Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að konan og maðurinn hennar skáluðu í kampavíni til að halda upp á vinninginn. Vísir/Valli
Eigandi miðans sem gaf af sér 12 milljóna Lottóvinning um síðustu helgi var staddur í sumarfríi á erlendri grundu þegar hún fékk símtal frá Íslenskri getspá þar sem henni var tilkynnt að hún hefði unnið.

Konan var búin að spila lengi með sömu tölurnar og gat ekki hugsað sér að sleppa út útdrætti þannig að hún setti allar uppáhaldtölurnar í áskrift áður en hún hélt af landi brott. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að konan og maðurinn hennar skáluðu í kampavíni til að halda upp á vinninginn. Þau hjónin eru lengi búin að hugsa sér að skipta um húsnæði en vantaði fjármagn og ætla því að nota hluta af þessum vinningi til þess.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×