Erlent

Ætlar að ná öllu Sýrlandi á sitt vald á ný

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Assad Sýrlandsforseti.
Assad Sýrlandsforseti. vísir/epa
Bashar al-Assad Sýrlandsforseti ætlar að ná Sýrlandi aftur á sitt vald en stórum hluta landsins er stjórnað af uppreisnarmönnum eða hryðjuverkahópum á borð við ISIS.

Stórveldi heimsins samþykktu í gær að reyna að koma á vopnahléi í landinu sem á að hefjast eftir eina viku en AFP-fréttastofan hafði skömmu áður en vopnahléið var samþykkt tekið viðtal við Assad. Það var síðan birt í dag og gefur ef til vill ekki góð fyrirheit um að vopnahléi verði komið á.

Í viðtalinu lýsti Assad þeim fyrirætlunum sínum að ná þeim landssvæðum Sýrlands sem eru undir stjórn uppreisnarhópa eða hryðjuverkamanna aftur undir sína stjórn. 

Hann sagði að það gæti þó tekið tíma þar sem nágrannaríki Sýrlands væru óbeinir þátttakendur í stríðinu. Hann varaði meðal annars við því að Tyrkir og Sádar myndu blanda sér með beinum hernaðaraðgerðum í átökin en stjórnvöld í Tyrklandi og Sádi Arabíu styðja uppreisnarhópa gegn Assad.

Að mati Assad má binda enda á stríðið á innan við ári ef lokað verður fyrir smyglleiðir uppreisnarmanna í gegnum Tyrkland, Jórdaníu og Írak. Þá sagðist hann viljugur til viðræðna en það þýddi ekki að Sýrlandsher myndi hætta að berjast við uppreisnarhópa og hryðjuverkamenn.

Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins sagði Assad á villigötum ef hann héldi að hernaður myndi leysa vandann. Þá sagði utanríkisráðherra Sádi Arabíu að það yrði að koma Assad frá völdum ef ríki heimsins ætluðu sér að brjóta ISIS á bak aftur.


Tengdar fréttir

Viðræður í uppnámi vegna loftárása

Þessa dagana standa yfir í Genf viðræður um átökin í Sýrlandi, þar sem fulltrúar bæði stjórnar og stjórnarandstöðu eiga að reyna að finna lausnir, og hafa til þess stuðning frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum, Rússlandi, Evrópuríkjum og fleiri löndum.

50 þúsund á flótta frá Aleppo

Átökin undanfarnar vikur í Aleppo, stærstu borg Sýrlands, hafa hrakið fimmtíu þúsund manns á vergang. Þetta segir í yfirlýsingu frá Rauða krossinum en ástandið í borginni fer vernsandi dag frá degi. Búið er að rjúfa allar vatnsleiðslur sem liggja inn í borgina auk þess nær ómögulegt er að koma þangað hjálpargögnum.

Stefnir í umsátur um Aleppo

Sýrlenski stjórnarherinn sækir hratt að Aleppo og líklegt þykir að hundruðir þúsundir Sýrlendinga muni lokast inn í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×