Innlent

Ætlar að gera allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir að bankarnir falli á almenning

Birgir Olgeirsson skrifar
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME, ræddi nýja eigendur í Arion banka í Kastljósi í kvöld.
Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri FME, ræddi nýja eigendur í Arion banka í Kastljósi í kvöld. Vísir/GVA/ERNIR
„Ég geri allt sem í mínu valdi stendur að það verði ekki gert,“ sagði Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, í Kastljósi í kvöld þegar hún var spurð hvað hún ætli að gera til að koma í veg fyrir að nýir eigendur Arion banka geti reist sömu spilaborgina og var gert fyrir fall bankanna árið 2008.

Í Kastljósi var Unnur spurð hvort það gæti ekki talist eðlileg krafa að Íslendingar fái að vita hverjir það eru sem kaupa í bönkum hér á landi.

Hún sagði svarið vera „já“ í því tilviki því hér á landi sé beinlínis lagaskylda að upplýsa það.

Kaupendahópurinn samanstendur af Goldman Sachs, sem eignast 2,6 prósenta hlut í Arion banka, Taconic Capital sem eignast 9,99 prósent, Attestor Capital sem sömuleiðis eignast 9,99 prósent og svo Och-Ziff Capital sem sem keypti 6,6 prósenta hlut.

Hafa gefið til kynna að þeir vilja kaupa meira

Unnur upplýsti í kvöld að tveir eða þrír af þessum nýju eigendum hefðu gefið til kynna að þeir hafi í huga að kaupa meira, og þá mun Fjármálaeftirlitið leggja mat á þá sem virka eigendur, en virkir eigendur eru þeir sem eiga 10 prósent eða meira í bankanum.

Fréttastofa RÚV greindi frá því í kvöld að félögin sem halda utan um hluti Taconic Capital og Och-Ziff í Arion banka séu skráð til heimilis á Cayman-eyjum og því gæti reynst erfitt að rekja slóð þeirra.

Unnur sagði að þegar Fjármálaeftirlitið skoðar hæfi virkra eigenda þá séu atriði til skoðunar líkt og orðspor eigenda, fjárhagsleg staða og fleira.

Orðspor Och-Ziff laskað og lánshæfiseinkunn í ruslflokki

Í september síðastliðnum greindi dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna frá því að Och Ziff hefði gengist við því að greiða sekt upp á 213 milljónir dala, eða um 23 milljarða íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag, vegna mútumáls. Í tilkynningu á vef dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna kom fram að Och-Ziff hefði í leit að gróða borgað margar milljónir í mútur til háttsettra embættismanna í Afríku.

Greint var frá því á Vísi í dag að matsfyrirtækið Standard & Poor´s hefði lækkað lánshæfiseinkunn Och-Ziff niður í ruslflokk degi eftir að félag á vegum Och-Ziff keypti hlutinn í Arion. Framtíðarhorfur félagsins eru sagðar neikvæðar, reksturinn fari versnandi og að ólíklegt þyki að félagið geti staðið undir fjárfestingum sínum.

Unnur sagði að orðspor fyrirtækjanna yrði kannað og að sannreyna þyrfti upplýsingar sem hefðu komið fram undanfarna daga.

Búið að herða reglur

Spurð hvort að búið væri að girða fyrir að almenningur endi með gjaldþrota banka í fanginu líkt og árið 2008 svaraði Unnur að svo væri tryggt með Evrópulöggjöf sem væri búið að herða.

Ábyrgð eigenda sé miklu meiri í dag og að löggjöfin miði að því að bankar lendi ekki á innistæðueigendum eða skattborgurum. Hún tók þó fram að ekki væri búið að innleiða löggjöfina hér á landi en það væri í undirbúningi.


Tengdar fréttir

Och-Ziff í ruslflokk degi eftir kaupin í Arion

Matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn Och-Ziff Capital Manangement Group í gær niður í ruslflokk, degi eftir að sjóður á vegum Och-Ziff keypti 6,6 prósenta hlut í Arion banka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×