Lífið

Ætlar að bjóða heimilislausum manni í hádegismat á hverjum einasta degi - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Virkilega fallega gert hjá Max Zahir.
Virkilega fallega gert hjá Max Zahir. vísir
Heimilislausir eru gríðarlega margir í Bandaríkjunum og eiga margir um sárt að binda.

Max Zahir langaði að leggja sitt af mörkum á dögunum þegar heimilislaus maður kom að honum og spurði hvort hann ætti nokkuð smá auka pening.

Zahir bauð manninum upp í bíl til sín og bauðst til að fara með hann á næsta veitingastað til að gefa honum að borða. Maðurinn þáði það. Zahir ákvað einnig að bjóða manninum að sækja hann á hverjum einasta degi á þessum stað og gefa honum að borða næstu vikurnar.

Myndband af fundi þeirra félaga má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×