Innlent

Ætlar að afnema verðtrygginguna nái hann kjöri en ella fara að vinna

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Sturla Jónsson
Sturla Jónsson vísir
„Þetta er áleiðis, svona áður en ég baka þetta,“ segir forsetaframbjóðandinn Sturla Jónsson í samtali við Vísi.

Sturla mælist með 2,5 prósent fylgi í nýrri könnunn Fréttablaðsins sem birtist í dag. Sturla verður því þátttakandi í kappræðum Stöðvar 2, sem fram fara í kvöld, ásamt Andra Snæ Magnasyni, Davíð Oddssyni, Guðna Th. Jóhannessyni og Höllu Tómasdóttur.

„Ég veit samt ekki hvað er að marka þessa könnun. 65 ára og eldri eru aldrei teknir með í svona kannanir. Ég held ég eigi mun meiri stuðning,“ segir Sturla. Máli sínu til stuðnings vísar hann í kannanir Hringbrautar og Útvarps Sögu auk mælinga sem orðið hafa á vegi hans á Facebook. „Í þeim könnunum er ég að mælast með allt að fjörutíu prósent fylgi. Ég spái ekki of í slíkum könnunum. Það sem skiptir mestu máli er þegar það er talið upp úr kössunum.“

Á döfinni hjá Sturlu er undirbúningur fyrir kappræðurnar í kvöld á Stöð 2 og á morgun hjá RÚV. Síðan eru fjöldamörg viðtöl áætluð í dag, þar á meðal á Útvarpi Sögu.

„Ef ég næ kjöri hugsa ég að fyrstu dagarnir fari í að vera í stuttri starfskynningu hjá Ólafi og starfsfólki forsetaembættisins,“ segir Sturla aðspurður um sitt fyrsta embættisverk. „Síðan þegar ég hef verið vígður í embættið mun ég tafarlaust hefja vinnu við að láta ráðherra leggja fram frumvarp um afnám verðtryggingarinnar. Öll viljum við hana burt.“

Fari það svo að Sturla nái ekki kjöri ætlar hann heldur ekki að sitja auðum höndum. „Þá byrja ég bara að finna mér vinnu. Það er nóg til af henni handa mér,“ segir Sturla að lokum.


Tengdar fréttir

Tæplega helmingur segist styðja Guðna

Þótt fylgi við Guðna Th. Jóhannesson haldi áfram að minnka hefur hann enn ríflegt forskot á aðra frambjóðendur. Halla Tómasdóttir bætir við sig 10 prósentum í nýrri könnun. Andri Snær og Davíð Oddsson eru nánast jafnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×