Lífið

Ætlaði að verða ljósmóðir

Anita Eldjárn
Anita Eldjárn
1. Þegar ég var ung ætlaði ég að verða ljósmóðir eins og mamma.

2. En núna er ég ljósmyndari.

 

3. Ég mun eflaust aldrei fara í teygju- eða fallhlífarstökk. Tilhugsunin ein hræðir mig!

4. Ég hef engan sérstakan áhuga á að laga til.

5. Karlmenn eru jafn ólíkir og þeir eru margir.

6. Ég hef lært að elska mig alla. Kosti mína og galla.

7. Ég fæ samviskubit þegar ég kæfi mig í vinnu og rækta ekki vini mína og fjölskyldu.

8. Ég slekk á sjónvarpinu ef einhver sci-fi-mynd byrjar. Ég bara get þær ekki.

9. Um þessar mundir er ég á fullu að plana „off venue“ Airwaves-dagskrá fyrir Loft Hostel og búa mig undir langþráð frí.

10. Ég vildi óska þess að börn og dýr hættu að þjást vegna ákvarðana fullorðinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×