Lífið

Ætlaði að vera hljóðláta systirin á kantinum en endaði með að heilla alla

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessar tvær fóru sáttar að sofa um kvöldin.
Þessar tvær fóru sáttar að sofa um kvöldin.
Hin sautján ára Taryn Coccia mætti í áheyrnarprufu í Amercian Idol á dögunum en þær voru haldnar í Nashville.

Coccia mætti ásamt systur sinni Payton Taylor sem hafði aðeins eitt hlutverk og það var að spila á gítar undir söng Coccia.

Taryn Coccia heillaði dómnefndina nokkuð vel en þau Katy Perry, Lione Richie og Luke Bryan voru mjög spennt fyrir því að heyra í Taylor.

Það endaði með því að hún gjörsamlega heillaði þremenningana upp úr skónum og hún rauk í gegn. Að lokum komust þær báðar áfram.

American Idol er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudags- og föstudagskvöldum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×