Sport

Ætla þeir virkilega að fara að leyfa fólki að mæta með byssur á leiki?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vísir/Samsett/Getty
Arkansas-fylki í Bandaríkjunum ætlar að ganga lengra með nýrri byssulöggjöf en þekkist á flestum stöðum í vestrænum heimi. Þeir eru hinsvegar að fara í þveröfuga átt en flestir eiga von á 21. öldinni.

Árið er 2017 en stjórnmálamenn í Arkansas eru ekki að takmarka rétt fólks á að bera skotvopn heldur þvert á móti.

Asa Hutchinson, ríkisstjóri í Arkansas, skrifaði undir nýju skotvopnalögin 22. mars síðastliðinn en þau gefa fólki leyfi að bera skotvopn innan klæða á landi í eigu almennings. Sporting News segir frá.

Þar með taldir eru íþróttaleikvangar eins og sá hjá fótboltaliðið Arkansas-háskólans. Fólkið þarf þó að sækja um sérstakt leyfi sem krefst þess að viðkomandi byssueignandi gangi í gegnum átta tíma námskeið í umsjón fylkislögreglunnar.

Þingið í Arkansas lagði reyndar fram breytingartillögu um að íþróttaleikvangar yrði undanskildir frá umræddum stöðum þar sem byssueignendur geti borið skotvopn innan klæða. Ríkisstjórnin í Arkansas hefur ekki ennþá samþykkt þá breytingu.

Greg Sankey, yfirmaður SEC deildarinnar, hefur miklar áhyggjur af nýju skotvopnalögunum og hann sendi meðal annars frá sér yfirlýsingu þar sem hann skorar á yfirvöld í Arkansas að sjá þess að byssulöggjöfin nái ekki yfir íþróttaleikvanga.

Það er ljóst að öryggi margra væri ógnað ef fjöldi fólks kæmi með byssur inn á íþróttakappleiki í Arkansas. Arkansas háskólinn er í Fayetteville og Donald W. Reynolds Razorback Stadium tekur 72 þúsund manns.

Það er líka erfitt að sjá fyrir sér að slíkt leyfi til að bera byssur á íþróttakappleikjun gangi hreinlega upp og því er ekkert skrýtið þótt margir bandarískir fjölmiðlamenn veki athygli á stöðu mála á þingi Arkansas-fylkis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×