Skoðun

Ætla stjórnarflokkarnir að svíkja kosningaloforðin?

Björgvin Guðmundsson skrifar
Nú er búið að ákveða kjördag alþingiskosninga í haust: 29. október. Það eru því aðeins 2½ mánuður til kosninga. Alþingiskosningar voru 2013. Þá héldu stjórnarflokkarnir flokksþing og samþykktu sínar kosningastefnuskrár; samþykktu fyrirheit til kjósenda. Þar voru stór kosningaloforð við aldraða og öryrkja samþykkt, þar á meðal stærsta loforðið varðandi kjara­gliðnun krepputímans. Það er ekki farið að efna þessi loforð ennþá, nú rétt fyrir kosningar!

Átti að leiðréttast strax

Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti að ellilífeyrir yrði leiðréttur strax til samanburðar við þær hækkanir, sem orðið hefðu á lægstu launum frá árinu 2009. Þetta er mjög skýrt loforð og óskiljanlegt hvers vegna það var ekki efnt strax 2013 eins og lofað var; nema aldrei hafi verið ætlunin að efna það og aðeins meiningin að blekkja kjósendur! Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn tækifæri til þess að afsanna slíkar hugmyndir og standa við loforðið strax í upphafi sumarþings.

Framsóknarflokkurinn samþykkti að leiðrétta ætti lífeyri vegna kjara­gliðnunar (kjaraskerðingar) krepputímans. Framsókn hefur ekki fremur en Sjálfstæðisflokkurinn minnst á þetta loforð frá því að ríkisstjórnin tók við völdum 2013. Fyrst nú „korteri“ fyrir kosningar fór Sigmundur Davíð, formaður flokksins, að tala um að bæta þyrfti kjör aldraðra og öryrkja (ótilgreint). Sigmundur mun því áreiðanlega hjálpa til við efndir á kosningaloforðinu þó utan stjórnar sé. En það er stuttur tími til stefnu. Efni stjórnarflokkarnir ekki þetta stóra kosningaloforð, eru það stærstu kosningasvik við aldraða og öryrkja, sem framin hafa verið.

Stórt loforð Bjarna óuppfyllt!

Kosningaloforðin, sem gefin voru öldruðum og öryrkjum 2013, voru fleiri. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sendi eldri borgurum bréf og lofaði þeim því, að hann mundi afnema tekjutengingu ellilífeyris fengi hann tækifæri til. Hann fékk tækifærið strax 2013 en hefur ekkert gert í því að efna loforðið. Loforðið þýðir að hætta á alveg að skerða lífeyri TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði og vegna tekna af atvinnu og fjármagni. Þetta skiptir aldraða og öryrkja miklu máli, ef það er efnt. Með því að þingið er komið saman getur Bjarni efnt þetta strax á morgun ásamt loforðinu um leiðréttingu vegna kjaragliðnunar.

Það eina sem stjórnarflokkarnir efndu af kosningaloforðum á sumarþinginu 2013 var þetta: Grunnlífeyrir var leiðréttur og frítekjumark vegna atvinnutekna var leiðrétt en ríkisstjórnin hefur boðað, að hvort tveggja verði afturkallað, skv. nýju frumvarpi. Ekkert annað hefur ríkisstjórnin gert í að efna kosningaloforðin frá 2012.

Þessi grein birtist upphaflega íFréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×