Innlent

Ætla sér að færa valdið til almennings

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Lýðræðismál voru í brennidepli á Aðalfundi Pírata sem fór fram í Iðnó um helgina. Fundarmenn hafa í raun sinnt málefnastarfinu í nokkurn tíma en öll málefnavinna fór fram á vef Pírata. Þannig gátu fleiri en bara fundargestir mótað stefnu flokksins.
Lýðræðismál voru í brennidepli á Aðalfundi Pírata sem fór fram í Iðnó um helgina. Fundarmenn hafa í raun sinnt málefnastarfinu í nokkurn tíma en öll málefnavinna fór fram á vef Pírata. Þannig gátu fleiri en bara fundargestir mótað stefnu flokksins. vísir/stefán
„Píratar eru mótstöðuflokkur í eðli sínu,“ segir Ásta Helgadóttir, verðandi þingmaður Pírata. Hún mun taka þingsæti Jóns Þórs Ólafssonar þegar Alþingi kemur aftur saman í byrjun september.

Hún segir að eðli Pírata hingað til hafi verið að bregðast hratt við aðgerðum ríkisstjórnarinnar hverju sinni en með auknum meðbyr gætu Píratar hugsanlega þurft að breyta starfsháttum. Hún sér fyrir sér að Píratar gætu tekið þátt í ríkisstjórn eftir Alþingiskosningar.

Ásta er ánægð með fylgi Pírata en segir að þrátt fyrir bjartsýni þurfi að halda uppi raunhæfum væntingum.

Ásta Guðrún Helgadóttir
„Ég held að við getum gert ráð fyrir um 15 til 25 prósentum atkvæða í næstu kosningum.“

Í stjórnmálaflokki þar sem enginn formaður er til staðar er athygli fólks á málefnunum en ekki úlfúðinni í kringum formannskosningar.

„Við Píratar erum í raun eins og ein stór fjölskylda. Í stað þess að deila um leiðir að markmiðinu erum við með mjög skýran fókus á markmiðið. Við erum mjög lausnamiðaður flokkur,“ segir Ásta.

Flokkur sem berst fyrir því að færa valdið til fólksins fylgir eigin predikun en undirbúningur málefnastarfs Pírata fór fram í aðdraganda fundarins á vefnum. Allir skráðir Píratar áttu kost á að ræða og móta stefnuna fyrir fundinn og þrjár vinsælustu tillögurnar fengu að lokum meðferð fundarmanna aðalfundar.

Lýðræðismálin voru ofarlega á baugi og raunar voru nær einungis lýðræðismál á dagskrá aðalfundar en þar trónaði ný stjórnarskrá efst. Þá samþykkti fundurinn tillögu um lýðræðiseflingu á öllum stjórnsýslustigum, eflingu á kosningaþátttöku ungs fólks og ályktun um móttöku flóttafólks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×