Enski boltinn

Ætla gera Harry Kane að launahæsta leikmanni liðsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Harry Kane í leik með Spurs.
Harry Kane í leik með Spurs. vísir/getty
Forráðamenn Tottenham Hotspur ætla sér að gera Harry Kane að launahæsta leikmanni liðsins og vill félagið semja til langtíma við Kane.

Þessi 23 ára leikmaður gerði 5 og hálfs árs samning við félagið í febrúar árið 2015. Félagið vill endursemja Dele Alli, Eric Dier, Christian Eriksen, Kyle Walker og Danny Rosa sem og Harry Kane. Kane er í dag með 70 þúsund pund í laun á viku.

Talið er að fái 120 þúsund pund í vikulaun semji hann á ný við Tottenham.

Félagið vill einnig halda í Erik Lamela og Jan Vertonghen og semja þeir líka á ný við Spurs á næstu misserum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×