Innlent

Ætla frekar í fangelsi en að borga fyrir náttúrupassa

Birgir Olgeirsson skrifar
Náttúrupassinn hefur verið afar umdeildur.
Náttúrupassinn hefur verið afar umdeildur. Vísir/GVA
Stofnaður hefur verið hópur á Facebook sem heitir því að fara fremur í fangelsi en að borga fyrir náttúrupassann. Þegar þessi frétt er skrifuð hafa um 56 sett nafn sitt við hópinn en hópurinn segist ekki vilja nefskatt fyrir að horfa á fjöllin.

„Engin innanlandsvegabréf og enga tollheimtumenn við náttúruperlur. Við munum aldrei sætta okku við að ríkisstjórnin leggi á náttúruskatt,“ segir á síðu hópsins. Áður hafa Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, og Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, lýst því yfir að þeir muni aldrei borga fyrir náttúrupassa og ekki heldur sekt.

„Fólk einsog ég, sem ætlar aldrei að greiða náttúrupassa, og ekki heldur sekt, verður þá væntanlega höndum tekið og sett í fangelsi. Þarf þá ekki að byggja fleiri fangelsi,“ spurði Össur Skarphéðinsson á Facebook í gær sem sagði hann og Steingrím J. ekki vera þá einu sem ætla frekar að láta fanglelsa sig heldur en að borga gjald til að skoða náttúruna.

Vísir greindi frá því í gær að reiknað sé með að náttúrpassinn skili allt að fimm milljörðum króna í ríkissjóð og að stærstur hluti þeirra tekna komi til vegna erlendra ferðamanna. Passinn kostar 1.500 krónur og gildir til þriggja ára í senn og er fyrir alla átján ára og eldri. Það þýðir að passinn kostar fimm hundruð krónur á ári, eða rúma krónu á dag, en þessir fjármunir munu verða eyrnamerktir uppbyggingu á ferðamannastöðum.


Tengdar fréttir

Náttúruverndargjald í stað náttúrupassa

Flestir virðast á þeirri skoðun að réttlætanlegt sé að leggja einhvers konar gjald á ferðamenn til að kosta náttúruvernd á þeim stöðum sem verða fyrir mestum átroðningi þeirra. Ráðherra ferðamála hlýtur hins vegar að vera farin að átta sig á því að hugmyndin um innheimtu náttúrupassa í þeim tilgangi er vond

Líklegt að passinn breytist hjá þinginu

Ólga er innan þingflokks sjálfstæðismanna vegna náttúrupassans. Ólíklegt þykir að frumvarpið verði afgreitt í óbreyttri mynd og eru aðrar hugmyndir ræddar.

Náttúran megi ekki liggja undir skemmdum

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, sem jafnframt er ráðherra ferðamála, mælti fyrir frumvarpi um náttúrupassa á Alþingi í gær.

Náttúrupassi býr til nýja stétt landgreifa

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir, heldur sig við sama heygarðshornið í baráttu sinni fyrir svokölluðum náttúrupassa. Herferð sinni fyrir þessari afleitu hugmynd heldur hún áfram þrátt fyrir afgerandi andstöðu allra hagsmunaaðila




Fleiri fréttir

Sjá meira


×