Ætla að skera niður um 24 milljarða evra Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. maí 2010 06:59 Silvio Berlusconi er forsætisráðherra á Ítalíu. Mynd/AP
Ítalska ríkisstjórnin hefur samþykkt 24 milljarða evra niðurskurð fyrir næsta ár og þarnæsta til að fást við fjárlagahallann. Upphæðin samsvarar 3800 milljörðum íslenskra króna. Í niðurskurðartillögunum felst að draga úr launakostnaði í opinberum rekstri og draga úr nýráðningum opinberra starfsmanna. Jafnframt er gert ráð fyrir að minna verði greitt úr lífeyrissjóðum opinberra starfsmanna. Þá mun verða skorið niður í rekstri sveitastjórna. Niðurskurðurinn nemur 1,6% af vergri landsframleiðslu. Ítalía er síður en svo fyrsta ríkið í Evrópu sem greinir frá niðurskurðaráætlunum i því efnahagsóveðri sem er skollið á í heimsálfunni. Grikkland, Spánn og Portúgal hafa gripið til svipaðra úrræða og Ítalía. Þá tilkynntu Bretland og Danmörk um niðurskurðaráætlanir fyrr í vikunni. Opinberir starfsmenn á Ítalíu hafa þegar gripið til mótmæla gegn þessum niðurskurðaráformum. Þeir fullyrða að hið opinbera hafi þegar þurft að líða fyrir kreppuna og ekki sé hægt að ganga lengra í þessa átt. Stjórnvöldum væri nær að taka harðar á undanskotum frá skatti.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Maður sem tók tíu í gíslingu í Kaliforníu skotinn til bana Sjá meira