Innlent

Ætla að sjá við óprúttnum þjófum

Gissur Sigurðsson skrifar
Lögreglufulltrúinn Einar Ásbjörnsson og hans félagar munu hafa vakandi auga með þjófum nú um helgina.
Lögreglufulltrúinn Einar Ásbjörnsson og hans félagar munu hafa vakandi auga með þjófum nú um helgina.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að halda uppi eftirliti í öllum hverfum svæðisins um Verslunarmannahelgina til að koma í veg fyrir að þjófar nýti sér tækifærið til innbrota, þar sem fólk er ekki heima. Fólki er einnig bent á að ganga tryggilega frá öllum opnanlegum gluggum, láta einhver ljós loga innandyra og biðja nágranna, sem ekki ætla út úr bænum, að fylgjast með mannaferðum við hús sín.

Undanfarin ár hefur borið á því að óprúttnir þjófar hafi sætt færis um Verslunarmannahelgi þegar fólk er að heiman.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×