Ætla að sjá City vinna titilinn 9. maí 2012 08:00 á leið til manchester Magnús Ingvason, formaður Manchester City-klúbbins, ætlar að sjá sína menn vinna titilinn. fréttablaðið/pjetur „
Við vitum að í fótbolta getur allt gerst, en andskotinn hafi það, þetta verður bara að nást,“ segir Magnús Ingvason, formaður Manchester City-klúbbsins á Íslandi. 23 meðlimir klúbbsins ætla á lokaleikinn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á sunnudaginn þegar City tekur á móti QPR á Etihad-leikvanginum. Með sigri tryggir City sér Englandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í 44 ár, eða síðan 1968. Sjálfur byrjaði Magnús að halda með City árið 1969. „Þetta verður ævintýraleg stemning og við getum hreinlega ekki beðið,“ segir Magnús um ferðalagið til Manchester. „Þetta er búið að vera svolítið rússíbanadæmi. Við keyptum þessa ferð í nóvember og þá leit þetta vel út. Síðan kom bakslag eftir áramótin og þeir svartsýnustu voru frekar daprir þegar Manchester United var með átta stiga forystu. En ég hef ekki misst trúna og ég er búinn að segja það alltaf að við erum ekki að fara í þessa ferð nema til að taka við titlinum,“ segir Magnús, borubrattur. Áttatíu manns eru í City-klúbbnum á Íslandi, sem er aðeins brot af þeim sem greiddu félagsgjaldið í United-klúbbinn fyrir þessa leiktíð, eða tæplega þrjú þúsund manns. Hann segir að margir aðdáendur annarra liða vonist eftir að City vinni titilinn frekar en nágrannarnir í United. „Það eru allra liða kvikindi að hvetja mann áfram. En þetta lýsir kannski meira hatri á United en væntumþykju fyrir City.“ -fb
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira