Erlent

Ætla að koma annarri geimstöð á braut um jörðu

Samúel Karl Ólason skrifar
Þrír geimfarar voru sendir til Tiangong 1 árið 2013.
Þrír geimfarar voru sendir til Tiangong 1 árið 2013. Vísir/AFP
Kínverjar tilkynntu í dag að þeir ætli sér að senda geimstöð á braut um jörðina seinna á árinu. Það yrði önnur geimstöðin sem þeir skjóta á loft á fimm árum. Skömmu eftir það er markmiðið að senda tvo geimfara um borð.

Geimstöðin heitir Tiangong 2 en hún og forvari hennar Tiangong 1 eru frumgerðir af stærri geimstöð sem Kínverjar ætla sér að koma á braut um jörðina eftir um fjögur ár. Í yfirlýsingu sem geimstofnun Kína gaf út í dag segir að verkefnið sé á áætlun.

Tiangong 1 var skotið á loft í september 2011 og nokkrum vikum seinna var ómannað geimfar sent til hennar. Árin 2012 og 2013 voru geimfarar sendir um borð. Undanfarna áratugi hafa Kínverjar varið miklu fé til geimferða og rannsókna.

Þeir sendu fyrsta geimfara sinn út í geim árið 2003 og síðan þá hafa tíu til viðbótar fylgt á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×