Lífið

Ætla að gifta sig og ættleiða barn fljótlega

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Stjörnuparið Charlize Theron og Sean Penn ætlar að eyða sumrinu í Suður-Afríku og hefur í nægu að snúast.

Þau ætla að taka upp myndina The Last Face sem Sean leikstýrir og Charlize leikur í. Auk þess ætla þau að gifta sig og ættleiða barn saman samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly.

„Þau vilja gifta sig fljótlega,“ segir heimildarmaður tímaritsins og bætir við að Charlize hafi ávallt haft í hyggju að eignast barn en fyrir á hún ættleidda soninn Jackson, tveggja ára.

Sean á tvö börn, Dylan, 23 ára og Hopper, 20 ára, með fyrrverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Robin Wright.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×