Innlent

Ætla að geyma hamborgarann um ókomna tíð

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Síðasti McDonalds- hamborgarinn, sem seldur var hér á landi þegar veitingastaðurinn lagði upp laupana fyrir sex árum, er enn í ágætis ástandi, og eftir að hafa verið í geymslu í Þjóminjasafninu er hann nú til sýnis á gistiheimili í Reykjavík. Mbl greindi fyrst frá málinu.

Bandaríska skyndibitakeðja McDonalds opnaði á Íslandi í september 1993. Húsið við Suðurlandsbraut 56 var byggt sérstaklega fyrir starfsemina sem vakti nokkuð mikla lukku hjá landanum, en Davíð Odsson, þáverandi forsætisráðherra opnaði staðinn með því að gæða sér á fyrsta Big Mac hamborgaranum sem gerður var hér á landi. Þegar mest var voru fjórir McDonalds hamborgarastaðir í Reykjavík.

Í október 2009 tilkynnti rekstraraðili McDonalds á Íslandi að vegna falls krónunnar hefði verið ákveðið að hamborgarakeðjan myndi hætta rekstri á Íslandi.

En saga McDonalds á Íslandi endar þó ekki þar, því maður að nafni Hjört­ur Smára­son keypti síðasta McDon­alds-ham­borg­ara Íslands þann þann 31. október 2009. Hann geymdi borgarann sjálfur til ársins 2012, en þá fór hann í vörslu Þjóðminjasafnsins. Að sögn sérfræðings hjá safninu var ári síðar tekin fagleg ákvörðun um að safnið gæti ekki geymt hamborgarann áfram, Meðal annars vegna bakteríuhættu og hversu erfitt er að varðveita matvæli til lengri tíma. 

Eft­ir að Þjóðminja­safnið hafnaði gripn­um lánaði Hjört­ur Bus Hostel í Skóg­ar­hlíð borg­ar­ann þar sem hann er nú til sýn­is fyr­ir gesti og gang­andi. Sex árum síðar er hann næstum eins og nýr og ekki enn farinn að skemmast, eins og sést í meðfylgjandi myndskeiði. Framtíð borgarans er björt en til stendur að koma upp vefmyndavél þar sem fólk getur fylgst með honum eldast um ókomna tíð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×