Erlent

Ætla að byrja að sigra aftur

Samúel Karl Ólason skrifar
Trump ásamt eiginkonu sinni Melania Trump og dóttur Ivanka Trump.
Trump ásamt eiginkonu sinni Melania Trump og dóttur Ivanka Trump. Vísir/Getty
Þeir Bernie Sanders og Donald Trump sigruðu í forvalinu í New Hampshire í nótt með tiltölulegum yfirburðum. Velgengni beggja frambjóðenda er talin sýna fram á að Bandaríkjamenn eru þreyttir á stjórnmálum og hvernig þau fara fram. Þó er óhætt að segja að erfitt sé að finna tvo ólíkari menn.

Trump var efstur meðal Repúblikana með rúm 35 prósent. Næstur á eftir honum kom John Kasich með 16 prósent og þar á eftir Ted Cruz með 11,5 prósent.

Sjá einnig: Trump og Sanders rúlluðu upp New Hampshire

Í sigurræðu sinni sagðist Donald Trump ætla að gera Bandaríkin frábær aftur, en það hefur verið helsta heróp framboðs hans. Hann varði þó miklum tíma í að þakka fjölskyldu sinni fyrir stuðninginn sem og að hrósa Bernie Sanders fyrir sigur sinn yfir Hillary Clinton.

Hann sagði þó fljótlega að Sanders ætlaði sér að gefa Bandaríkin og það mætti ekki leyfa honum það. Þá sagði hann einnig að yrði hann kosinn forseti myndu Bandaríkin sigra Íslamska ríkið.

Samantekt CBSN Trump þakkaði andstæðingum sínum Samantekt New York Daily News Sigurræða Trump í heild sinni

Tengdar fréttir

Trump og Sanders rúlluðu upp New Hampshire

Repúblikaninn Donald Trump og Demókratinn Bernie Sanders unnu báðir stórsigra í forvölum flokka sinna í New Hampshire í nótt. Sanders fékk um sextíu prósent atkvæða í ríkinu á meðan Hillary Clinton fékk um fjörutíu prósent og Trump er langt á undan hinum frambjóðendunum hjá Repúblikönum með 35 prósent atkvæða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×