Körfubolti

Ægir með flestar stoðsendingar í sigri San Pablo Burgos

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ægir skoraði fimm stig og gaf fimm stoðsendingar.
Ægir skoraði fimm stig og gaf fimm stoðsendingar. vísir/andri marinó
Ægir Þór Steinarsson var stoðsendingahæstur í liði San Pablo Inmobiliaria Burgos sem vann 13 stiga sigur, 97-84, á Sáenz Horeca Araberri Basket í spænsku B-deildinni í körfubolta í kvöld.

Ægir lék í 22 mínútur; skoraði fimm stig og gaf fimm stoðsendingar. Íslenski landsliðsmaðurinn hitti úr tveimur af þremur skotum sínum utan af velli.

San Pablo Burgos er í 8. sæti deildarinnar með 17 stig eftir 11 leiki.

Ragnar Nathanaelsson lék aðeins í þrjár mínútur þegar Caceres Patrimonio De La Human bar sigurorð af Palma Air Europa, 91-82.

Ragnar skoraði tvö stig og tók eitt fráköst á þeim litla tíma sem hann fékk í leiknum.

Caceres er í 15. sæti deildarinnar með 14 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×