Íslenski boltinn

Ægir Jarl skoraði tvö þegar Fjölnir varði bikarmeistaratitilinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bikarmeistarar í 2. flokki 2016.
Bikarmeistarar í 2. flokki 2016. mynd/fjölnir
Fjölnir varð í gær bikarmeistari í 2. flokki karla í fótbolta eftir 3-1 sigur á Keflavík/Njarðvík.

Þetta er annað árið í röð sem Fjölnir verður bikarmeistari í 2. flokki. Margir af þeim strákum sem tóku þátt í að vinna bikarkeppni 2. flokks undanfarin tvö ár urðu einnig bikarmeistarar í 3. flokki 2014.

Keflavík/Njarðvík byrjaði leikinn betur og komst yfir með marki Adams Árna Þorsteinssonar eftir 15 mínútur. Djordje Panic jafnaði metin í 1-1 á 37. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Þegar 14 mínútur voru til leiksloka kom Ægir Jarl Jónasson Fjölni yfir og á 83. mínútu skoraði hann svo sitt annað mark úr vítaspyrnu og gulltryggði sigur Grafarvogsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×