Fótbolti

Adu ekki dauður úr öllum æðum | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Freddy Adu.
Freddy Adu. vísir/getty
Bandaríski knattspyrnukappinn Freddy Adu náði aldrei að standa undir væntingum en hann var eitt sinn efnilegasti knattspyrnumaður heims.

Hann er þessa dagana að spila með Tampa Bay Rowdies í bandarísku 2. deildinni.

Adu er aðeins 26 ára og ætti í raun að vera á hátindi ferilsins í dag. Hann er aftur á móti að spila með sínu þrettánda félagi á tólf árum og hefur hvorki gengið né rekið hjá honum.

Adu lagði upp mark á frábæran hátt fyrir Brian Shriver og þessi magnaða stoðsending hefur skotið honum aftur í sviðsljósið.

Hvort hann fylgi þessu síðan eftir með góðri spilamennsku er allt annað mál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×