Enski boltinn

Aðstoðarþjálfari Real Madrid líklega á leið til Derby

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Clement er mikils metinn þjálfari.
Clement er mikils metinn þjálfari. vísir/getty
Samkvæmt frétt BBC verður Paul Clement næsti knattspyrnustjóri Derby County.

Derby er í stjóraleit en félagið sagði Steve McClaren upp störfum í gær. Hrútunum mistókst að komast í umspil um sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa verið í toppsæti B-deildarinnar í lok febrúar en þeir unnu aðeins tvo af síðustu 13 deildarleikjum sínum.

Clement, sem er 43 ára, var aðstoðarþjálfari Carlos Ancelotti hjá Real Madrid en hann starfaði einnig með Ítalanum hjá Chelsea og Paris Saint-Germain. Ancelotti var rekinn frá Real Madrid í gær og því er Clement væntanlega einnig á förum frá spænska stórveldinu.

Clement fór snemma út í þjálfun og hefur einnig unnið hjá Fulham, Blackburn Rovers og írska knattspyrnusambandinu.


Tengdar fréttir

Ancelotti rekinn frá Real Madrid

Carlo Ancelotti hefur verið rekinn sem stjóri Real Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Marca greinir frá þessu nú síðdegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×