Innlent

Aðstoðarmaður innanríkisráðherra vill á þing

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Þórdís Kolbrún hefur verið aðstoðarmaður Ólafar Nordal síðan í desember 2014.
Þórdís Kolbrún hefur verið aðstoðarmaður Ólafar Nordal síðan í desember 2014.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra, mun sækjast eftir öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi í komandi kosningum. Þá mun Haraldur Benediktsson alþingismaður sækjast eftir fyrsta sæti listans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá formanni stjórnar kjördæmisráðs Norðvesturkjördæmis þar sem vísað er til kjördæmisþings Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið var síðastliðna helgi.

Í samtali við fréttastofu segist Þórdís í raun aðeins hafa lýst yfir áhuga á að sækjast eftir sætinu, hún hafi ekkert formlega kynnt ennþá hvað hún hyggist gera. 

„En ég sagði í Borgarnesi að ég svona kastaði því út í kosmósið að ég hefði áhuga á að verða þingmaður,“ segir Þórdís.  

Prófkjör verður haldið í Norðvesturkjördæmi

Á þinginu var samþykkt að við uppstillingu á framboðslista flokksins fyrir komandi Alþingiskosningar í haust skyldi halda prófkjör.

Þórdís Kolbrún hefur aldrei setið á þingi áður en hefur gegnt stöðu aðstoðarmanns innanríkisráðherra síðan í desember 2014. Hún var framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðismanna frá því vorið 2013. Hún var jafnframt kosningastjóri Sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi fyrir síðustu Alþingiskosningar.

Haraldur Benediktsson hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn síðan árið 2013. Fyrir þann tíma starfaði hann sem bóndi og var í tæpan áratug formaður Bændasamtaka Íslands.

Einar K. Guðfinnsson gefur ekki kost á sér til endurkjörs.vísir/Gva
Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, skipaði fyrsta sæti listans fyrir síðustu Alþingiskosningar en hann hefur lýst því yfir að hann muni ekki gefa kost á sér aftur. Hann hefur setið á Alþingi síðan 1991. 

Á aðalfundinum var samþykkt ályktun þar sem fram kemur að Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi fagni „þeim mikla árangri sem náðst hefur á yfirstandandi kjörtímabili. Bætt lífskjör, lækkandi skuldir heimila og fyrirtækja, lág verðbólga, lítið atvinnuleysi og fjölgun fjölbreytilegra starfa, traust stjórn fjármála ríkisins, lækkandi skuldir hins opinbera, góður viðskiptaafgangur, aukin fjárframlög í mikilvæga málaflokka samfara lækkun skatta, eru til marks um að vel hefur tekist til við stjórn landsins á þessum tíma.“ Þá er Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra og Ólöfu Nordal innanríkisráðherra þakkað sérstaklega í ályktuninni fyrir þeirra störf í þágu þjóðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×