Erlent

Aðstoðarflugmaðurinn brotlenti vélinni viljandi

Atli Ísleifsson og Samúel Karl Ólason skrifa
150 manns fórust þegar vélinni var flogið á fjallið.
150 manns fórust þegar vélinni var flogið á fjallið. Vísir/AFP
Saksóknarar í Marseille í Frakklandi segja að aðstoðarflugmaður Germanwings vélarinnar sem brotlenti í Ölpunum á þriðjudaginn hafi brotlent vélinni viljandi.

  • Um leið og flugstjórinn yfirgaf flugstjórnarklefann til að fara á salernið læsti aðstoðarflugmaðurinn klefanum, hægði á vélinni og setti hana í dýfu.
  • Á hljóðupptökum má heyra flugstjórann biðja flugmanninn um að hleypa sér inn en honum er aldrei svarað.
  • Saksóknari segir líklegustu tilgátuna vera að aðstoðarflugmaðurinn hafi gert þetta viljandi. Tilgangurinn hafi verið að granda flugvélinni.
  • Aðstoðarflugmaðurinn hét Andreas Lubitz og var 28 ára Þjóðverji frá bænum Montabaur í Rínarlandi-Pfalz.


16:26:Aðstandendur gefa lífsýni

Hamish Macdonald, fréttamaður ABC, greinir frá því að yfirmaður aðgerða á vettvangi í frönsku Ölpunum hafi nýverið rætt við blaðamenn. „Ég mun ekki lýsa því sem blasti við mínum mönnum á staðnum. Þetta er ekki sýning. Við verðum að bera virðingu fyrir fórnarlömbunum,“ sagði yfirmaðurinn.

Macdonald greinir frá því að milli 250 og 300 aðstandendur fórnarlambanna hafi nú komið til bæjanna sem eru næst staðnum þar sem flugvélinni var flogið á fjall. Þeir hafi verið beðnir um að gefa lífsýni til að auðvelda það að bera kennsl á líkin. „Sumir vilja vera hér í nokkra daga en flestir fara aftur heim í kvöld.“

16:20:Facebook-reikningi Lubitz lokað

Búið er að loka Facebook-reikningi aðstoðarflugmannsins Andreas Lubitz. Í frétt Guardian segir að reikningurinn hafi bent til þess að um „venjulegan“ ungan mann hafi verið að ræða, með áhuga á raftónlist, diskói og keilu.

Hann á að hafa líkað við síður Lufthansa og LFT Bremen, eins af fimm flugskólum Lufthansa og þar sem hann stundaði sjálfur nám.

Lubitz virðist hafa umgengst flesta vini sína í bænum Koblenz. Á síðu sinni hlekkjar hann inn á síðu klifurveggs í nálægu skóglendi, veitingastaðar Burger King, keilusalsins Pinup og næturklúbbsins Agostea Nachtarena í Koblenz.

Á síðunni segir að uppáhaldstónlistarmenn Libitz séu Paul Kalkbrenner og David Guetta.

16:12:Aðstandendum boðin áfallahjálp

Um fjörutíu aðstandendur þeirra 150 sem fórust í komu saman í dag í bæjunum Seyne-les-Alpes og Le Vernet. Þar standa kapellur opnar auk þess að sálfræðingar eru til staðar til að þjónusta þá sem syrgja. Spiegel greinir frá.

15:50:Icelandair og Wow breyta verklagi

Bæði Icelandair og Wow Air ætla að taka upp þá vinnureglu upp í flugi að aldrei séu færri en tveir úr áhöfn í flugstjórnarklefanum. Upplýsingafulltrúar flugfélaganna staðfesta þetta í samtali við Vísi.

15:45:Blaðamannafundur Angelu Merkel

Angela Merkel Þýskalandskanslari segist mjög slegin vegna þeirra frétta sem bárust frá saksóknaranum í Marseille fyrr í dag. Blaðamannafundur Merkel hófst klukkan 15:30. „Það er erfitt að meta þá þjáningu sem þessi harmleikur hefur kallað yfir fjölda fjölskyldna. Í dag hefur okkur svo verið greint frá því að þessi harmleikur hefur öðlast nýja og óskiljanlega vídd.“

Merkel sagði þýsk stjórnvöld munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að auðvelda rannsókn málsins.



15:30: Lubitz glímdi við þunglyndi árið 2009

Matthias Gebauer, fréttamaður Spiegel, segir að vinir aðstoðarflugmannsins Andreas Lubitz hafi greint frá því að Lubitz hafi „brunnið út“ eða glímt við þunglyndi árið 2009. Á þeim tíma hafi hann þurft að gera hlé á flugnámi sínu.

15:07:Foreldrar Lubitz í Frakklandi

Að sögn France Info komust foreldrar aðstoðarflugmannsins Andreas Lubitz fyrst að því að líklegt sé talið að sonur þeirra hafi valdið því að flugvélinni var grandað, þegar þau komu til Marseille í Frakklandi ásamt aðstandendum annarra sem fórust.

Í frétt Telegraph segir að foreldrarnir séu í áfalli og verði brátt yfirheyrð af lögreglu.

Rúta með fjörutíu aðstandendum er nú komin til Seyne-les-Alpes og er von á tíu rútum til viðbótar.

15:01:Montabaur, heimabær Lubitz

Montabaur, heimabær aðstoðarflugmannsins Andreas Lubitz, er lítill bær í Rínarlandi, um sextíu kílómetra norðvestur af Frankfurt. Lögregla hefur girt af heimili Lubitz-fjölskyldunnar sem er í útjaðri bæjarins. Íbúar telja um 12 þúsund.

14:48:Norwegian breytir verklagi sínu

Norska flugfélagið Norwegian hefur ákveðið að breyta verklagi þannig að að minnsta kosti tveir verði að vera í flugstjórnarklefanum þegar vél er á flugi. NRK greinir frá þessu.

Evrópskar reglur kveða ekki á um að áhafnarmeðlimur verði að vera í flugstjórnarklefanum þegar annar flugmannanna þarf að skreppa frá, til dæmis til að fara á salernið. Bandarískar reglur kveða hins vegar á um slíkt.

14:32: Jakkafataklæddir menn halda inn á heimili Lubitz

Tveir jakkafataklæddir menn fóru inn á heimili aðstoðarflugmannsins Andreas Lubitz í Montabaur fyrir skemmstu. Verdens Gang greinir frá þessu. Lögregla sem er á staðnum ræddi fyrst við mennina áður en þeir héldu inn. Fréttamaður VG sem er á staðnum segir ekki ljóst frá hvaða embætti mennirnir koma en þykir líklegt að verið sé að framkvæma húsleit.

14:22:Blaðamannafundi Lufthansa lokið

Blaðamannafundi forsvarsmanna Lufthansa og dótturfélagsins Germanwings lauk í Köln fyrir skemmstu.

14:21
: Treystir flugmönnum Lufthansa

Cartsten Spohr, forstjóri Lufthansa, segist treysta öllum þeim flugmönnum sem fljúga fyrir félagið. „Þetta er einstakur atburður.“ Hann segist einnig bera full traust til þeirrar þjálfunar og þeirra rannsókna sem flugmenn félagsins gangast undir.

14:15: Lufthansa kannar ekki andlega líðan flugmanna

Carsten Spohr, forstjóri Lufthansa, segir að flugmenn félagsins fari reglulega í læknisskoðun, en að andleg líðan þeirra sé ekki skoðuð sérstaklega. Þetta kom fram á fréttamannafundi forsvarsmanna Lufthansa og Germanwings.

14:03: Flugmaðurinn gerði ekkert rangt

Carsten Spohr, forstjóri Lufthansa, segir að hvorki Germanwings né Lufthansa séu með sérstakar starfsreglur sem kveða á um að áhafnarmeðlimur þurfi að vera eftir í flugstjórnarklefanum ef annar flugmannanna þarf að yfirgefa klefann, til dæmis til að fara á salernið.

Spohr segir að evrópskar reglugerðir krefjist þess ekki og hann sagðist ekki vita til þess að samkeppnisaðilar félaganna starfi eftir slíkum reglum.

Aðspurður um hvort flugmaðurinn hafi gert eitthvað rangt með því að skilja aðstoðarflugstjórann einan eftir segir Spohr svo ekki vera.



13:54
: Hörmulegur, einstakur atburður

Thomas Winkelmann, forstjóri Germanwings, ræddi einnig mál sem varða flugstjórnarklefa og öryggismál. „Það sem gerðist er hörmulegur, einstakur atburður. Við erum að fást við ráðgátu.“ Hann segir að engin sérstök kerfi hefðu getað komið í veg fyrir slíkan atburð.

Hann viðurkenndi að dyrnar inn í flugstjórnarklefa hafi verið efldar á síðustu árum þannig að ekki sé hægt að opna þær með þvi að notast við vopn. Einungis sé hægt að opna dyrnar með því að slá inn sérstakan kóða sem allir áhafnarmeðlimir kunna. Þó er hægt að koma í veg fyrir að dyrnar séu opnaðar utan frá úr flugstjórnarklefanum sjálfum.

13:46: Fréttamannafundur Lufthansa er hafinn

Fréttamannafundur forsvarsmanna Lufthansa og Germanwings er hafinn í höfuðstöðvum Lufthansa í Köln. Talsmaður Lufthansa segist vera orðlaus eftir að fréttir bárust frá saksóknara um að aðstoðarflugstjóri vélarinnar hafi komið í veg fyrir að flugstjórinn kæmist inn í flugstjórnarklefann, og mögulega flogið vélinni inn í fjallið.

„Ég get bara endurtekið það sem ég hef sagt síðustu daga. Við erum í áfalli og ég hefði ekki getað ímyndað mér að málið myndi versna.“

Thomas Winkelmann, forstjóri Germanwings, segir aðstoðarflugmanninn hafa hafið þjálfun hjá félaginu árið 2008 og fyrst starfað sem flugþjónn. Hann segir ekkert óvenjulegt hafa einkennt þjálfun Lubitz. „Þetta er hræðilegasti atburðurinn í sögu flugfélagsins.“

13:39: Rajoy sorgmæddur

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur lýst yfir sorg vegna þeirra fregna sem bárust á fréttamannafundinum í Marseille í hádeginu.

13:33: Viðbrögð frá Germanwings

Þýska lággjaldafélagið hefur birt tíst þar sem segir að starfsfólk sé í áfalli vegna fregna sem bárust á fréttamannafundi saksóknarans í Marseille.

13:25: Má vænta meiriháttar breytingar á flugöryggismálum

Pekka Henttu, stjórnarformaður í flugöryggismálastofnun Evrópusambandsins (EASA), segir að mikilla breytinga sé að vænta þegar kemur að flugöryggismálum.

Harmleikurinn, þar sem aðstoðarflugmaður vélar Germanwings virðist hafa flogið henni viljandi á fjall, mun fá geirann til að íhuga hvernig megi koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Henttu segir að fyrst og fremst þurfi að leita lausna sem snúa að dyrunum inn í flugstjórnarklefa flugvéla.

13:17:Lufthansa með blaðamannafund

Þýska flugfélagið Lufthansa mun halda blaðamannafund innan skamms. Áætlað er að hann hefist klukkan 13:30.

13:16: Draumur hans að verða flugmaður

Aðstoðarflugmaðurinn Andreas Lubitz var 28 ára gamall og hafði flogið fyrir þýska lággjaldaflugfélagið Germanwings frá því í september 2013. Hann hafði áður verið í þjálfun í flugstjórnarskóla Lufthansa í Bremen. Hann átti 630 flugtíma að baki.

Lubitz hafði verið meðlimur í flugklúbbnum Luftsportclub Westerwald frá táningsaldri, og segja aðrir meðlimir það hafa verið draum Lubitz að gerast flugmaður. „Andreas varð meðlimur í klúbbnum til að láta draum sinn um að gerast flugmaður rætast,“ segir í yfirlýsingu frá klúbbnum.

Nágrannar Lubitz lýsa honum sem vingjarnlegum manni sem hafi verið ákafur í að láta draum sinn rætast. Í blaðinu Rhein Zeitung kemur fram að nágrannar segi hann hafa haldið sér í formi með því að hlaupa. „Við sáum hann mjög oft hlaupa framhjá húsinu okkar,“ er haft eftir nágranna í bænum Montabaur.

13:03: Lögregla í Montabaur

Lögreglumenn hafa afgirt svæðið í kringum hús hins 28 ára Andreas Lubitz og foreldra hans í bænum Montabaur í Rínarlandi-Pfalz.

12:59: Samskipti flugmannanna

Saksóknari segir að fyrstu tuttugu mínútur flugsins hafi flugmennirnir rætt saman á eðlilegan máta –glaðlega og kurteisislega. „Síðan heyrðum við flugstjórann hefja undirbúning lendingarinnar í Düsseldorf og aðstoðarflugmaðurinn virtist fámáll. Svo  heyrum við flugstjórann biðja aðstoðarflugstjórann um að taka stjórn. Þá heyrum við hvernig sætinu er rennt aftur og hurð lokast.“

12:53:Sambærilegir atburðir

BBC hefur rifjað upp þrjá eldri atburði þar sem grunur leikur á að vélinni hafi verið brotlent viljandi.

29. nóvember 2013: 33 manns fórust þegar vél sem var að fljúga á milli Mósambik og Angóla var brotlent. Rannsókn benti til að flugmaðurinn hafi brotlent vélinni viljandi eftir að aðstoðarflugmaðurinn yfirgaf flugstjórnarklefann.

31. október 1999: Boeing 767 vél EgyptAir hrapaði um hálftíma eftir flugtak í New York. 217 fórust. Rannsókn leiddi í ljós að vélinni hafi líklegast verið brotlent viljandi.

19. desember 1997: Rúmlega hundrað manns létust þegar Boeing 737 var flogið milli Indónesíu og Singapúr. Grunur lék á að flugmaðurinn hafi slökkt á tækjum og viljandi látið vélina taka dýfu.

12:41:„Andreas, opnaðu dyrnar!“

Á hljóðupptökum kemur fram að flugmaðurinn Patrick S, á að hafa öskrað: „Andreas, opnaðu dyrnar!“. TF1 greinir frá þessu.

12:34: Alger þögn í flugstjórnarklefanum

Saksóknari segir að alger þögn hafi verið í flugstjórnarklefanum áður en vélinni var flogið á fjallið. „Ekkert, ekki orð síðustu tíu mínúturnar,“ segir Brice Robin.

12:31: Birta mynd af Lubitz

Breska blaðið Daily Mirror hefur birt mynd af aðstoðarflugstjóranum Andreas Lubitz.

12:28: Engin tengsl við hryðjuverkamenn

Saksóknari í Frakklandi segir að yfirvöldum hafi ekki verið kunnugt um að Lubitz hafi átt einhver tengsl við hryðjverkamenn eða þá að atvikið hafi verið hryðjuverk. „Ég vil ekki kalla þetta sjálfsvíg. Sjálfsvíg er eitthvað sem maður gerir einn. Ég þessu tilfelli tók viðkomandi 150 manns með sér,“ segir Brice Robin.

12:25:28 ára gamall

Á vef Telegraph segir að hinn 28 ára Lubitz hafi búið heima hjá foreldrum sínum í Montabaur en einnig leigt íbúð í Düsseldorf.

12:22:Mátti heyra öskur flugfarþeganna

Saksóknari segir að á hljóðupptökum mátti heyra öskur flugfarþeganna, þegar vélin lækkaði flugið og þeir sáu flugstjórann reyna að komast inn flugstjórnarklefann.

12:19:Ungur Þjóðverji frá bænum Mondabaur

Þýskir fjölmiðlar segja aðstoðarflugmanninn Andreas Lubitz sem flug vélinni á fjallið hafa verið „ungan“ Þjóðverja frá bænum Montabaur í Rínlandi. Hann átti 630 flugtíma að baki. Hann gekk til liðs við Germanwings árið 2013 eftir að hafa útskrifast úr Lufthansa flugskólanum í Bremen.

12:17: Flugstjórinn tveggja barna faðir

Þýskir fjölmiðlar segja flugmann vélarinnar, Patrick S, hafa verið tveggja barna föður sem hafi starfað hjá Lufthansa og Germanwings í tíu ár. Hann átti rúmlega sex þúsund flugtíma að baki.

12.14: Búið að finna seinni flugritann

Ríkissaksóknari hefur greint frá því að búið sé að finna seinni flugrita vélarinnar. Í gær var greint frá því að búið væri að finna „skel“ vélarinnar.

12:10:Aðstoðarflugmaðurinn nafngreindur

Aðstoðarflugmaðurinn hefur nú verið nafngreindur. Hann hét Andreas Lubitz. Báðir flugmennirnir voru Þjóðverjar. Frá þessu greinir franski ríkissaksaksóknarinn á fréttamannafundinum í Marseille nú fyrir stundu.

12:03: Mögulegt að koma í veg fyrir að hurð sé opnuð utan frá með lykilorði

Dyr flugstjórnarklefa eru hannaðar á þann veg að mögulegt er að opna þær utan frá með neyðarlykilorði, eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi (3:55), en það er hins vega hægt að koma í veg fyrir það innan frá.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×