Innlent

Aðildarviðræður seinka um mánuð vegna Þjóðverja

Viðræður ESB við Ísland varðandi aðild að Evrópusambandinu seinkar að minnsta kosti um mánuð vegna Lisbon sáttmálans. Þetta kemur fram á heimasíðunni Theparlament.com en fréttasíðan greinir frá fréttum sem varðar ESB.

Þar segir að Þjóðverjar verði að fá að samþykkja aðildarviðræður við ríki áður en samningaviðræður hefjast. Áður stóð til að þing ESB ríkja í Brussel í næstu viku myndu samþykkja samningaviðræður við Ísland um inngöngu í ESB.

Fulltrúi þýskra sósíalista í Brussel, Jo Leinen, segir í fréttinni að útspil Þjóðverja að skoða sérstaklega inngöngu Íslands, vera valdatafl á milli þingsins í Brussel og þýska þingsins.

Þá er Icesave skuldin nefnd í fréttinni og að aðildarríki hafi áhyggjur af stöðu mála. Einnig kemur fram að margir þingmenn innan ESB hafa ekki trú á því að íslenska þjóðin hafi raunverulegan áhuga á því að ganga inn í ESB þegar á hólminn verður komið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×