Skoðun

Aðferðafræðin frá Hiroshima enn á sínum stað!

Ögmundur Jónasson skrifar
Hinn 6. ágúst 1945 varð japanska borgin Hirosh­ima fyrir kjarnorkuárás og þremur dögum síðar, hinn 9. ágúst, borgin Nagasaki.

Fyrr í sumar heimsótti Barack Obama Bandaríkjaforseti þessar tvær borgir. Ýmsir gerðu sér vonir um að Bandaríkjaforseti bæðist afsökunar á kjarnorkuárásunum fyrir rúmum sjö áratugum.

Einbeittur drápsvilji

Obama baðst ekki afsökunar heldur talaði í kringum efnið: „Fyr­ir 71 ári féll dauðinn af himn­um ofan og heim­ur­inn breytt­ist,“ sagði Obama um sprengj­una sem „sýndi að mann­kynið hef­ur alla burði til að tor­tíma sér sjálft“.

Dauðinn kom ekki af himnum ofan í einhverjum óræðum skilningi, heldur létust á þriðja hundrað þúsund manns þegar Bandaríkjamenn af einbeittum ásetningi vörpuðu sprengjum á borgirnar tvær til þess að drepa og hræða.

Hótuðu tortímingu

Eftir fyrri árásina var krafist uppgjafar af hálfu Japana, ella skyldu þeir hafa verra af og búast við „regni tortímingar og eyðileggingar, meiri en dæmi væru um í sögu heimsbyggðarinnar“, eins og sagði orðrétt í yfirlýsingu Bandaríkjaforseta frá þessum tíma. Eftir síðari árásina sannfærðust Japanir um að alvara var að baki þessari hótun.

Ásetningur að baki hótunum

Þetta var úthugsuð aðgerð og hugmyndafræðin er enn til staðar. Á henni, hótunarmætti handhafa kjarnorkusprengjunnar, hvílir aðferðafræði Bandaríkjanna og NATO. Kjarnorkuveldin tala um „fælingarmátt“ vopna sinna til að láta líta svo út að þessar þjóðir séu alltaf í vörn. Fælingarmátturinn byggir á því að „óvinurinn“ trúi því að ásetningur sé að baki hótunum um að beita kjarnorkuvopnum ef þurfa þykir.

Þess vegna verður aldrei beðist afsökunar á Hiroshima og Nagasaki af hálfu þessara bandalagsþjóða Íslands í NATO. Það verður aldrei gert á meðan hernaðarstefna NATO er við lýði.

Fordæma ríki sem vilja vera eins!

En svo mikill er tvískinnungurinn, að Íran er hótað öllu illu ef það ríki vogar sér að taka upp sömu kjarnorkuvopnastefnu og Bandaríkin! Sjálfum þykir mér einsýnt að heimurinn eigi að berjast gegn kjarnorkuvopnavæðingu Írans og allra ríkja sem eru að feta sig inn á þessa viðsjárverðu braut. En gleymum ekki að krefjast þess að sama skapi, að kjarnorkuveldin eyði kjarnorkuvopnum sínum þegar í stað þannig að dauðinn eigi ekki eftir að koma af himnum ofan eins og hann gerði úr bandarískum árásarþotum í Hirosh­ima og Nagasaki fyrir 71 ári.

Þess vegna fleytum við kertum

Afleiðingar þessarar illræmdustu hernaðaraðgerðar sögunnar verða ekki aðeins mældar í tölu látinna eða eyðileggingar á landi og mannvirkjum. Afleiðingarnar hafa fram á þennan dag verið að birtast í líkamlegum kvillum og sálarmeinum eftirlifenda.

Skilaboðin til samtímans ættu að vera þau að afleiðingarnar tali til okkar öllum stundum. Þær eiga að vera okkur víti til varnaðar. Þess vegna er hollt að minnast þessara atburða. Þess vegna er það orðinn árlegur viðburður á Íslandi í ágústmánuði að fleyta kertum í minningu fórnarlambanna frá Hiroshima og Nagasaki.




Skoðun

Sjá meira


×